
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Starfsmaður á lager á skurðstofum við Hringbraut
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
10.03.2026
Umsóknarfrestur
20.03.2026
Starfsmaður á lager á skurðstofum við Hringbraut
Ertu skipulagður og með góða tölvukunnáttu?
Skurðstofur Landspítala við Hringbraut leita að starfsmanni á lager til að ganga til liðs við teymi sem hefur umsjón með skurðstofulager. Í starfinu felst m.a. móttaka og frágangur lagervara, utanumhald um lager og gagnavinnsla.
Við sækjumst eftir einstaklingi með mjög góða tölvukunnáttu sem hefur gaman af skipulagi og vinnur nákvæmt með upplýsingar og gögn. Starfshlutfall er 100%. Unnið er í dagvinnu, frá kl. 07:30-15:30 og er starfið er laust frá 1. apríl 2026 eða eftir nánara samkomulagi.
Á skurðstofum Landspítala við Hringbraut eru 11 skurðstofur sem þjóna 7 sérgreinum og árlega eru framkvæmdar þar um 10 þúsund aðgerðir. Á deildinni starfa um 90 einstaklingar; hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, sótthreinsitæknar, skrifstofufólk og sérhæft starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni, sem unnin eru í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum. Gagnreynd þekking, viðurkenndir verkferlar, öryggi sjúklinga og teymisvinna eru höfð í fyrirrúmi á báðum starfseiningum. Í boði er einstaklings aðlöguð þjálfun eftir þörfum hvers og eins á skemmtilegum vinnustað.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ábyrgð og umsjón með pöntunum á lager og skráning í lagerkerfi
Umsjón með daglegu skipulagi og umgengni á lager, vörumóttaka og frágangur vara
Tryggir skilvirka ferla á vörum og að unnið sé samkvæmt verklagsreglum og stuðlar að hagkvæmni í rekstri
Umsjón með tiltektum fyrir skurðaðgerðir
Samskipti og samvinna við birgðastöð, innlenda birgja og dauðhreinsun
Önnur tilfallandi verkefni í samráði við deildarstjóra
Hæfniskröfur
Viðeigandi menntun sem nýtist í starfi
Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér nýja þekkingu
Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
Hæfni til að vinna í teymi
Góð íslenskukunnátta í mæltu og rituðu máli
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérhæfður starfsmaður, þjónustustörf, lagerstörf, skrifstofustarf
Tungumálahæfni: íslenska 4/5,
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 20.03.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Starfsmaður á lager á skurðstofum við Hringbraut
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
10.03.2026
Umsóknarfrestur
20.03.2026