Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Mennta­skólinn í Reykjavík

Upplýsingar um starf

Starf

Stærðfræðikennari við Menntaskólann í Reykjavík

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

-100%

Starf skráð

06.03.2026

Umsóknarfrestur

23.03.2026

Stærðfræðikennari við Menntaskólann í Reykjavík

Menntaskólinn í Reykjavík óskar eftir að ráða kennara, sérhæfðan í stærðfræði.

Auglýst er í fullt starf, en hlutastarf kemur einnig til greina.

Helstu verkefni og ábyrgð

Leitað er að vel menntuðum kennara með full réttindi á framhaldsskólastigi. Umsækjandi þarf að geta kennt bæði byrjendum og lengra komnum. Sérstaklega er sóst eftir kennara sem sýnir frumkvæði í starfi, góða samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.

Hæfniskröfur

Umsækjandi þarf að hafa háskólapróf í stærðfræði eða skyldum greinum (sbr. lög nr. 95/2019) og leyfisbréf. Góð samskipta- og skipulagshæfni er mikilvæg ásamt áhuga á að starfa í öflugu skólasamfélagi.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.

Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum Starfatorg (www.starfatorg.is) með tilheyrandi fylgigögnum, s.s. leyfisbréfi, ferilskrá, prófskírteinum og öðrum upplýsingum sem umsækjanda þykir skipta máli.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Ákvörðun um ráðningu byggir á innsendum gögnum og viðtölum.

Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið.

Umsókn getur gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur.

Vakin er athygli umsækjenda á að samkvæmt lögum um framhaldsskóla nr. 92/2008 er ekki heimilt að ráða einstakling til starfa sem hlotið hefur dóm fyrir brot á XXII. kafla almennra hegningarlaga og því er beðið um sakavottorð áður en af ráðningu getur orðið.

Upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu hans (www.mr.is).

Starfshlutfall er -100%

Umsóknarfrestur er til og með 23.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sólveig Guðrún Hannesdóttir

rektor

Tölvupóstur: solveigh@mr.is

Sími: 545 1900

Einar Guðfinnsson

fagstjóri í stærðfræði

Tölvupóstur: einarg@mr.is

Sími: 545 1900

Þjónustuaðili

Mennta­skólinn í Reykjavík

Upplýsingar um starf

Starf

Stærðfræðikennari við Menntaskólann í Reykjavík

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

-100%

Starf skráð

06.03.2026

Umsóknarfrestur

23.03.2026