Þjónustuaðili
Utanríkisráðuneytið
Upplýsingar um starf
Starf
Starfsnám í utanríkisþjónustunni
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
05.03.2026
Umsóknarfrestur
24.03.2026
Starfsnám í utanríkisþjónustunni
Utanríkisráðuneytið auglýsir starfsnám ætlað fólki sem hefur lokið BA-/BS-gráðu og stundar meistaranám eða hefur nýlokið slíku námi í grein sem tengist málefnasviði utanríkisþjónustunnar.
Markmiðið er að gefa ungu fólki sem er að hefja starfsferil sinn færi á að kynnast störfum utanríkisþjónustunnar.
Að þessu sinni eru auglýstar þrjár stöður starfsnema sem munu starfa á starfsstöð utanríkisþjónustunnar hjá fastanefnd Íslands í Genf frá 1. ágúst - 31. júlí 2027, sendiráði Íslands í Lilongwe 1. september - 31. ágúst 2027 og sendiráði Íslands í Vín frá 1. júlí - 31. desember 2026.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfsnemar aðstoða starfsfólk sendiskrifstofa við margvísleg málefni utanríkisþjónustunnar.
Helsta verkefni starfsnema í fastanefndinni í Genf er að styðja við setu Íslands í mannréttindaráðinu, sinna fundarsetu, greina gögn, aðstoða við talpunkta og ræðuskrif sem og styðja við þátttöku annarra starfsmanna í samningaviðræðum um mannréttindamál. Þá mun starfsnemi fá að kynnast öðrum verkefnum fastanefndarinnar svo sem á sviði mannúðarmála, alþjóðlegra viðskiptamála og EFTA eftir því sem við verður komið.
Helstu verkefni starfsnema hjá sendiráði Íslands í Lilongwe eru umsjón með og miðlun efnis á samfélagsmiðlum og fréttaskrif, sem og vöktun frétta í landinu og samantekt á þeim. Einnig er ætlast til að starfsnemi taki virkan þátt í ýmsum verkefnum, svo sem greiningum, vöktun verkefna, vinnu með samstarfsaðilum, mótun verkefna og þátttöku á fundum.
Helstu verkefni starfsnema hjá fastanefnd Íslands í Vín yrðu aðstoð við greiningu pólitískra mála í Austurríki og umdæmislöndum, verkefni á sviði menningar- og viðskiptamála, aðstoð sem snúa að borgaraþjónustu auk verkefna sem tengjast uppbyggingarsjóði EES. Innan fastanefndarinnar tekur starfsnemi einnig þátt í fundum, m.a. hjá ÖSE og öðrum alþjóðastofnunum og aðstoðar við ritun frásagna, yfirlýsinga og minnisblaða. Þá veitir starfsnemi jafnframt stuðning við almenna skrifstofustarfsemi og afleysingar eftir þörfum.
Hæfniskröfur
Hæfniskröfur
BA-, BS-, eða B.Ed.- gráða eða sambærileg menntun í grein sem tengist málefnasviði utanríkisþjónustunnar og þeim málefnum sem unnið er að á tilgreindum sendiskrifstofum.
Þjónustulund, skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
Færni í mannlegum samskiptum.
Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
Góð greiningarfærni og geta til að vinna með texta.
Góð tæknikunnátta og færni í notkun samfélagsmiðla er skilyrði.
Mjög góð aðlögunarhæfni.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Starfsnám hjá utanríkisráðuneytinu er launað og þiggja starfsnemar laun skv. kjarasamningi þess félags sem viðkomandi velur sér. Um er að ræða tímabundna ráðningu.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um starfið. Aðeins er tekið við umsóknum rafrænt í gegnum vefgátt Stjórnarráðsins. Athygli er vakin á að umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Hlekk á skipulag ráðuneytisins má finna hér: Stjórnarráðið | Skipulag
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 24.03.2026
Nánari upplýsingar veitir
Karlína Rós Magnúsdóttir
Tölvupóstur: karlina.ros.magnusdottir@utn.is
Þjónustuaðili
Utanríkisráðuneytið
Upplýsingar um starf
Starf
Starfsnám í utanríkisþjónustunni
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
05.03.2026
Umsóknarfrestur
24.03.2026