
Þjónustuaðili
Samgöngustofa
Upplýsingar um starf
Starf
Skipaeftirlitsmaður
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
05.03.2026
Umsóknarfrestur
16.03.2026
Skipaeftirlitsmaður
Samgöngustofa óskar eftir að ráða skipaeftirlitsmann í skipadeild. Um er að ræða fjölbreytt starf í alþjóðlegu umhverfi á sviði öryggis og eftirlits með skipum, þar sem fagmennska, nákvæmni og góð samskipti eru lykilatriði.Skipadeild gegnir mikilvægu hlutverki við að tryggja öryggi skipa og starfsemi þeirra. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að taka virkan þátt í því verkefni og vinna með reynslumiklu teymi. Starfshlutfall er 100%.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skoðanir skipa.
Þátttaka í eftirliti með skoðunarstofum skipa og flokkunarfélögum.
Þátttaka í þróun skoðunarhandbóka, skoðunarskýrslna og annara verkferla innan vottaðs gæðakerfis skipadeildar í samstarfi við aðra sérfræðinga.
Samskipti og ráðgjöf til viðskiptavina vegna leyfisveitinga og reglna.
Hæfniskröfur
D nám í vélstjórn og handhafi /eða hefur haft STCW eða STCW-F atvinnuskírteini sem yfirvélstjóri 3000 kW eða yfir
Mikil reynsla af sjómennsku, viðhaldi eða eftirliti með ástandi skipa og skipsbúnaðar.
Skipulögð og nákvæm vinnubrögð.
Mjög góð samskipta- og samvinnuhæfni.
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli
Frumkvæði, sjálfstæði og áræðni í starfi.
Þekking á gæða- og öryggisstjórnarkerfum er kostur.
Áhugi og forvitni til að læra.
Góð almenn tölvukunnáttu.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Öllum umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf. Í ráðningarferlinu verður óskað eftir að umsækjendur skili sakavottorði. Hafi umsækjandi verið fundinn sekur um refisverða háttsemi getur það orðið til þess að viðkomandi telst ekki hæfur til að gegna starfi hjá stofnuninni. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.Umsóknir gilda í a.m.k. sex mánuði ef staða losnar á ný. Starfskjör eru í samræmi við kjarasamning ríkisins og viðkomandi stéttarfélags. Samgöngustofa áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Samgöngustofa hvetur öll kyn til að sækja um starfið.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.03.2026
Nánari upplýsingar veitir
Geir Þór Geirsson
deildarstjóri skipadeildar
Sími: 480 6000

Þjónustuaðili
Samgöngustofa
Upplýsingar um starf
Starf
Skipaeftirlitsmaður
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
05.03.2026
Umsóknarfrestur
16.03.2026