
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á legudeild lyndisraskana Kleppi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
20.03.2026
Umsóknarfrestur
07.04.2026
Hjúkrunarfræðingur á legudeild lyndisraskana Kleppi
Áhugasamur og metnaðarfullur hjúkrunarfræðingur óskast til starfa á legudeild lyndisraskana á Kleppi.
Deildin er opin legudeild og dagdeild sem sinnir meðferð einstaklinga með lyndisraskanir og fjölþættan vanda. Deildin vinnur einnig í nánu samstarfi við meðferðarteymi göngudeildar lyndisraskana. Á deildinni er unnið fjölbreytt og sérhæft starf sem einkennist af góðum starfsanda, virkri og stöðugri framþróun og eru ótal tækifæri til að vaxa í starfi. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun.
Við leitum eftir jákvæðum og ábyrgum einstaklingi með góða samskiptahæfni. Viðkomandi þarf að hafa metnað og áhuga á að starfa við geðhjúkrun fyrir einstaklinga með alvarlegar geðraskanir
Ráðið er í starfið frá 1. maí 2026 eða eftir nánara samkomulagi og er starfið 70-100%. Unnið er á breytilegum dag-, kvöld- og helgarvöktum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Að taka þátt í að ákveða, skipuleggja og veita viðeigandi hjúkrunarmeðferðir
Virk þátttaka í þverfaglegum teymum
Samskipti, fræðsla, hvatning og víðtækur stuðningur við sjúklinga og aðstandendur þeirra
Þátttaka í umbótastarfi og þróun þjónustunnar
Samábyrgð á góðu og innihaldsríku starfsumhverfi
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Reynsla af geðhjúkrun er kostur
Faglegur metnaður og einlægur áhugi á geðhjúkrun
Góð samskiptahæfni
Ábyrgð í starfi og færni til að forgangsraða verkefnum
Jákvætt hugarfar og áhugi á að starfa í þverfaglegu teymi
Stundvísi og áreiðanleiki
Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun
Góð almenn tölvukunnátta
Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Kleppsgarður, 104 Reykjavík
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Díana Liz Franksdóttir
Tölvupóstur: dianaliz@landspitali.is
Jónína Einarsdóttir
Tölvupóstur: joninaei@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á legudeild lyndisraskana Kleppi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
20.03.2026
Umsóknarfrestur
07.04.2026