
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Doktorsnemi í menntavísindum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
05.03.2026
Umsóknarfrestur
07.04.2026
Doktorsnemi í menntavísindum
Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Starfið er til tveggja ára og tengist rannsókn þar sem metin eru áhrif gagnreyndrar hópastjórnunar á nám, hegðun og líðan nemenda sem og líðan og starfsánægju kennara. Notuð er áfallamiðuð nálgun og styðjandi aðferðir sem hafa sýnt fjölþætt jákvæð áhrif, bæði á nemendur og kennara.
Doktorsneminn mun vinna undir leiðsögn dr. Önnu Lindar Pétursdóttur, prófessors, og dr. Kristjáns Ketils Stefánssonar, dósents, en hefur jafnframt sveigjanleika við útfærslur á viðfangsefninu. Vinna doktorsnemans við rannsóknina og greinaskrif í tengslum við hana verður uppistaða í doktorsverkefni viðkomandi.
Rannsóknarverkefnið er styrkt af Rannís og að því kemur teymi rannsakenda við Háskóla Íslands í samstarfi við innlenda og erlenda fagaðila, þeirra á meðal hjá PAXIS Institute og Minnesotaháskóla.
Upphaf og umfang starfs er samkomulagsatriði. Mögulegt er að byrja í hlutastarfi og auka svo starfshlutfall síðar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þátttaka í rannsóknavinnu í samstarfi við leiðbeinanda
Gagnasöfnun og gagnagreining
Skrif fræðigreina og miðlun rannsóknaniðurstaðna
Möguleg kennsla í námskeiðum tengdum sérþekkingu doktorsnemans
Hæfniskröfur
Meistarapróf á sviði mennta- eða félagsvísinda, s.s. kennslufræði, sálfræði, þroskaþjálfafræði eða atferlisgreiningar. Umsækjandi skal hafa lokið prófi þegar starf hefst.
Þekking á eigindlegum eða megindlegum rannsóknaraðferðum
Reynsla af skrifum fræðilegs texta er kostur
Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli
Lipurð í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymi
Ráðning er háð því að umsækjandi sæki formlega um doktorsnám við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og að umsóknin sé samþykkt af doktorsnámsnefnd sviðsins.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Greinargerð, þar sem umsækjandi lýsir hvernig hann uppfyllir skilyrði starfsins, hvers vegna hann hefur áhuga á að vinna verkefnið og hugmyndum sínum um framlag til verkefnisins (hámark 2 blaðsíður)
Ferilskrá
Staðfest afrit af prófskírteinum
Upplýsingar um tvo umsagnaraðila þar sem fram koma tengsl við umsækjanda, netfang og símanúmer
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Kristján Ketill Stefánsson
Tölvupóstur: kristjan@hi.is

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Doktorsnemi í menntavísindum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
05.03.2026
Umsóknarfrestur
07.04.2026