Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Sálfræðingur fullorðinna - Heilsugæslan Sólvangi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

10.03.2026

Umsóknarfrestur

23.03.2026

Sálfræðingur fullorðinna - Heilsugæslan Sólvangi

Við hjá Heilsugæslunni Sólvangi leitum að metnaðarfullum sálfræðingi til að sinna sálfræðiþjónustu fyrir fullorðna, 18 ára og eldri. Um er að ræða 80-100% ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi hefji störf 1. maí nk. eða samkvæmt nánara samkomulagi

Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf á spennandi vettvangi, fyrir sálfræðing sem hefur áhuga á að taka þátt í framþróun í geðheilsumálum innan heilsugæslu og vill stuðla að heilbrigðri líðan einstaklinga. Sálfræðingur starfar í þverfaglegu teymi með sálfræðingum, félagsráðgjafa, læknum, hjúkrunarfræðingum og öðru fagfólki í skemmtilegu starfsumhverfi sem er í stöðugri þróun.

Heilsugæslunni er ætlað að veita íbúum almenna, samfellda og aðgengilega heilbrigðisþjónustu. Starfsemi heilsugæslunnar er í örri framþróun þar sem áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.

Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is)

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sálfræðiþjónusta fyrir einstaklinga 18 ára og eldri

  • Greining, mat og meðferð á geðrænum vanda, gagnreynd sálfræðimeðferð og ráðgjöf

  • Einstaklings- og hópmeðferð

  • Námskeiðahald, ráðgjöf og fræðsla

  • Handleiðsla og þjálfun nema í klínískri sálfræði æskileg

  • Þátttaka í þróun og uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu

  • Samstarf við aðrar heilbrigðisstofnanir s.s. Landspítala og félagsþjónustu

  • Önnur tilfallandi verkefni eftir þörfum

Hæfniskröfur

  • Leyfi frá landlækni til að starfa sem sálfræðingur er skilyrði

  • 3 ára starfsreynsla af klínísku starfi er æskileg

  • Þekking og reynsla af gagnreyndum sálfræðiaðferðum

  • Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu

  • Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi

  • Reynsla og áhugi á þverfaglegri teymisvinnu

  • Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum

  • Góð íslenskukunnátta skilyrði

  • Góð enskukunnátta æskileg

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um sálfræðimenntun og starfsleyfi. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdarstjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt að óska eftir hreinu sakavottorði.

Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 23.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Heiða Sigríður Davíðsdóttir

Tölvupóstur: Heida.Sigridur.Davidsdottir@heilsugaeslan.is

Sími: 513-6200

Þórunn Jóhanna Júlíusdóttir

Tölvupóstur: thorunn.johanna.juliusdottir@heilsugaeslan.is

Sími: 513-6200

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Sálfræðingur fullorðinna - Heilsugæslan Sólvangi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

10.03.2026

Umsóknarfrestur

23.03.2026