
Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Félagsráðgjafi - Heilsugæslan Hamraborg
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50%
Starf skráð
05.03.2026
Umsóknarfrestur
16.03.2026
Félagsráðgjafi - Heilsugæslan Hamraborg
Heilsugæslan Hamraborg óskar eftir að ráða félagsráðgjafa í 50% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. apríl næstkomandi.
Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf á spennandi vettvangi fyrir félagsráðgjafa sem hefur áhuga á nýsköpun og þróun innan heilsugæslu. Félagsráðgjafi starfar í þverfaglegu teymi með læknum, hjúkrunarfræðingum, sálfræðingum og öðru fagfólki í fjölbreyttu og metnaðarfullu starfsumhverfi sem er í stöðugri þróun.
Heilsugæslan er fyrsti viðkomustaður í heilbrigðisþjónustunni þar sem mætt er ólíkum þörfum notenda í nærumhverfi þeirra og þeim veittar leiðbeiningar inn í önnur úrræði heilbrigðiskerfisins eftir þörfum. Unnið er markvisst að þróun þjónustu með það að leiðarljósi að bæta þjónustu við skjólstæðinga.
Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef Heilsugæslunnar: www.heilsugaeslan.is.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þátttaka í þróun og uppbyggingu félagsþjónustu í heilsugæslu
Teymisvinna með læknum, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum, riturum og sálfræðingum
Einstaklingsviðtöl og ráðgjöf varðandi framfærsluúrræði, félagsleg úrræði og réttindamál
Fjölskylduráðgjöf af ýmsum toga
Veitir fræðslu til annarra fagstétta
Handleiðsla annars fagfólks og/eða nema, þegar við á
Samstarf við aðrar stofnanir og þjónustuveitendur, s.s. heilbrigðisstofnanir, þjónustumiðstöðvar, starfsendurhæfingu, TR, SÍ o.fl.
Ber ábyrgð á skipulagi og þróun félagsráðgjafarþjónustu innan starfstöðvar
Hæfniskröfur
Starfsleyfi frá embætti landlæknis til að starfa sem félagsráðgjafi skilyrði
Hefur að jafnaði a.m.k. 5 ára starfsreynslu í faggreininni
Reynsla af starfi í heilsugæslu kostur
Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu félagsþjónustu í heilsugæslu
Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi
Reynsla og áhugi fyrir þverfaglegri teymisvinnu
Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
Góð íslenskukunnátta skilyrði
Góð almenn tölvukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félagsráðgjafafélag Íslands hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt að óska eftir hreinu sakavottorði.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttinda stefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 16.03.2026
Nánari upplýsingar veitir
Huldís Mjöll Sveinsdóttir
Tölvupóstur: huldis.mjoll.sveinsdottir@heilsugaeslan.is

Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Félagsráðgjafi - Heilsugæslan Hamraborg
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50%
Starf skráð
05.03.2026
Umsóknarfrestur
16.03.2026