Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn á Suður­nesjum

Upplýsingar um starf

Starf

Varðstjórar á löggæslusviði - Lögreglustjórinn á Suðurnesjum

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

05.03.2026

Umsóknarfrestur

24.03.2026

Varðstjórar á löggæslusviði - Lögreglustjórinn á Suðurnesjum

Við embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum eru lausar til umsóknar fjórar stöður varðstjóra á löggæslusviði. Gert er ráð fyrir að lögreglustjóri setji í stöðurnar frá og með 1. maí 2026 með skipun í huga að sex mánaða reynslutíma loknum.

Hjá embættinu starfa um 200 manns í ólíkum og krefjandi störfum. Í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum er Keflavíkurflugvöllur sem gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu almannaflugs á Íslandi og tengir landið við Evrópu og Norður-Ameríku. Í fjölmennu liði lögreglunnar á Suðurnesjum býr mikill þróttur og góð þekking þar sem áhersla er lögð á jafnrétti, starfsánægju, heilbrigðan starfsanda og góð samskipti. Við ráðningar hjá LSS er tekið mið af jafnréttisáætlun embættisins.

Helstu verkefni og ábyrgð

Almennar upplýsingar um verksvið og ábyrgð varðstjóra má finna í 10. gr. reglugerðar nr. 1051/2006, um starfsstig innan lögreglunnar.

Verksvið og ábyrgð varðstjóra er í meginatriðum eftirfarandi:

  • Löggæslustörf og rannsóknir mála.

  • Vaktstjórn samkvæmt varðskrá og stjórn einstakra verkefna eða hóps lögreglumanna við almenn löggæslustörf.

  • Eftirlit með því að reglum og fyrirmælum sé fylgt.

Hæfniskröfur

Umsækjendur þurfa að uppfylla almenn skilyrði til að gegna lögreglustarfi skv. 28. gr. lögreglulaga nr. 90/1996.

  • Próf frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómanám í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k 120 stöðluðum námseiningum þ.m.t starfsnám á vegum lögreglunnar

  • Hafa starfað sem lögreglumaður í a.m.k. tvö ár frá því að tilskyldu námi lauk

  • Hafa lokið vettvangsstjóranámi og þekkja útgefnar verklagsreglur og leiðbeiningar

  • Góð þekking á lögreglukerfinu LÖKE

Mikilvægir eiginleikar:

  • Hæfni í mannlegum samskiptum

  • Sjálfstæði, sveigjanleiki og álagsþol

  • Skipulagshæfileikar og nákvæmni í vinnubrögðum

  • Lausnamiðað og jákvætt viðhorf

  • Frumkvæði og drifkraftur

Umsækjendur hafi gott vald á íslensku og ensku sem og góða almenna tölvukunnáttu.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.

Starfið er vaktavinna.

Athygli umsækjenda er vakin á heimild til að skoða sakaferil umsækjenda um starf í lögreglu en samkvæmt 28. gr. a lögreglulaga nr. 90/1996 er mælt fyrir um að engan megi skipa, setja eða ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur gerst sekur um refsivert athæfi sem telja má svívirðilegt að almenningsáliti eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu.

Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um starfið með því að smella á hlekkinn hér að neðan og láta ferilskrá og kynningarbréf fylgja með sem viðhengi.

Einungis er tekið við umsóknum með þessum hætti. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Varðandi persónuverndarákvæði gagnvart umsækjendum, sjá vef lögreglunnar: Suðurnes | Lögreglan

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 24.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Kristín Þórdís Þorgilsdóttir

mannauðsstjóri

Tölvupóstur: ktt01@logreglan.is

Sími: 4442200

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn á Suður­nesjum

Upplýsingar um starf

Starf

Varðstjórar á löggæslusviði - Lögreglustjórinn á Suðurnesjum

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

05.03.2026

Umsóknarfrestur

24.03.2026