Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérnámsstöður lyfjafræðinga í klínískri lyfjafræði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

05.03.2026

Umsóknarfrestur

26.03.2026

Sérnámsstöður lyfjafræðinga í klínískri lyfjafræði

Landspítali auglýsir laus til umsóknar störf lyfjafræðinga sem samhliða fullu starfi leggja stund á sérnám í klínískri lyfjafræði við Háskóla Íslands. Í starfinu felst vinna á klínískum deildum á spítalans og innan Lyfjaþjónustu. Sérnáminu lýkur með meistaragráðu frá Lyfjafræðideild Háskóla Íslands. Sérnámið er tekið samhliða 100% starfi sem lyfjafræðingur í lyfjaþjónustu Landspítala.

Í starfinu felst;

  • Fjölbreytt starf lyfjafræðings á Landspítala

  • Sérnám í klínískri lyfjafræði við Lyfjaþjónustu Landspítala

  • Þjálfun og starf á starfstöðvum Lyfjaþjónustu

  • Þjálfun og starf á legu-, dag- og göngudeildum

  • Vinna við gæðaverkefni

  • Þjálfun í fræðilegum vinnubrögðum

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinna sem lyfjafræðingur í klínískri Lyfjaþjónustu Landspítala

  • Þétt samstarf og mikil samskipti innan Lyfjaþjónustu og þvert á deildir Landspítala

  • Kennsla og þjálfun lyfjafræðinema, nýrra starfsmanna og annarra heilbrigðisstétta

  • Sérnámslyfjafræðingur ber sjálfur ábyrgð á fullri þátttöku í öllum þáttum sérnáms og skrásetningu þess í samræmi við hæfniviðmið

  • Standast þarf reglulegt stöðumat, til að fá framgang í sérnámi og áframhaldandi ráðningu

Hæfniskröfur

  • Framúrskarandi samskiptahæfni og sveigjanleiki

  • Sterk þjónustulund og reynsla af því að starfa í teymi

  • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi

  • Áreiðanleiki, stundvísi og árangursmiðað viðhorf

  • Virkur þátttakandi í jákvæðri menningu

  • Góð færni í íslensku og ensku

  • MS próf í lyfjafræði með lágmarkseinkunn 6,5

  • Íslenskt starfsleyfi sem lyfjafræðingur

  • Þekking á umgjörð lyfjamála í heilbrigðisþjónustu

  • Reynsla af störfum í apóteki eða sambærilegu þjónustustarfi kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Lyfjafræðingafélag Íslands hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, , Lyfjafræðingur, teymisvinna

Tungumálahæfni: íslenska 3/5, enska 3/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 26.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ingibjörg Sigurðardóttir

Tölvupóstur: insigurd@landspitali.is

Freyja Jónsdóttir

Tölvupóstur: freyjaj@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérnámsstöður lyfjafræðinga í klínískri lyfjafræði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

05.03.2026

Umsóknarfrestur

26.03.2026