
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði á dagdeild gigtlækninga
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
04.03.2026
Umsóknarfrestur
16.03.2026
Sjúkraliði á dagdeild gigtlækninga
Laust er til umsóknar starf sjúkraliða á dagdeild gigtlækninga á Eiríksstöðum, Eiríksgötu 5.
Við leitum eftir öflugum og metnaðarfullum sjúkraliða sem hefur áhuga á að starfa á frábærri, litilli og samheldinni einingu.
Á dagdeild gigtlækninga starfar samheldið og sérhæft teymi lækna, hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og ritara. Deildin veitir þjónustu við sjúklinga sem sem þurfa á innrennsli á líftæknilyfjum og mótefnum að halda.
Deildin er opin alla virka daga frá kl. 08:00-16:00. Starfshlutfall og upphaf starfa er samkomulag en æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
Móttaka skjólstæðinga, mælingar og skráningar og annað sem til fellur í samvinnu við aðra fagaðila
Virk þátttaka í teymisvinnu
Hæfniskröfur
Íslenskt sjúkraliðaleyfi
Geta unnið vel undir álagi
Sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður
Góðir samskiptahæfileikar
Góð íslenskukunnátta áskilin
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sjúkraliði, hjúkrun, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Eiríksgata 5, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.03.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði á dagdeild gigtlækninga
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
04.03.2026
Umsóknarfrestur
16.03.2026