Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á innrennsliseiningu dagdeildar gigtar

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

04.03.2026

Umsóknarfrestur

16.03.2026

Hjúkrunarfræðingur á innrennsliseiningu dagdeildar gigtar

Hjúkrunarfræðingur óskast í okkar góða hóp á innrennsliseiningu dagdeildar gigtar. Dagdeild gigtarsjúkdóma sinnir innrennsli á sérhæfðum lyfjum eins og líftæknilyfjum og mótefnum fyrir gigtar-, lungna-, tauga-, ónæmis og nýrnasjúklinga. Á deildinni starfar þverfaglegt teymi hjúkrunarfræðinga, lækna, ritara og sjúkraliða við fjölbreytt og krefjandi verkefni og einkennist vinnuandinn af samvinnu, metnaði og góðum liðsanda.

Við sækjumst eftir hjúkrunarfræðingi sem þrífst á spennandi verkefnum, sýnir þjónustulund, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum auk þess að eiga auðvelt með að vinna í teymi. Í boði er fjölbreytt, tæknilegt og líflegt starf í sérhæfðu starfsumhverfi. Starfið hentar hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga á að kynna sér þær framfarir sem líftæknilyf hafa haft á þróun í læknisfræði og breytt lífsgæðum fjölda sjúklinga til hins betra.

Deildin er staðsett í nýuppgerðu húsnæði á Eiríksstöðum, Eiríksgötu 5. Á deildinni starfar öflugt teymi heilbrigðisstarfsfólks með sterka framtíðarsýn á þjónustu við sjúklinga þar sem unnið er eftir gagnreyndri þekkingu.

Við leggjum metnað í að veita góða aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum deildarinnar. Starfshlutfall og upphaf starfa er samkomulag en æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Lyfjagjafir og eftirlit

  • Þátttaka í gæðastarfi og þróun þjónustu innan deildarinnar

  • Þátttaka í teymisvinnu

  • Fræðsla og stuðningur til sjúklinga og aðstandenda

  • Önnur verkefni í samráði við deildarstjóra

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Jákvætt lífsviðhorf og framúrskarandi samskiptahæfileikar

  • Skipulögð, sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð

  • Íslenskukunnátta áskilin

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Staðsetning: Eiríksgata 5, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 50-100%

Umsóknarfrestur er til og með 16.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Erna Jóna Sigmundsdóttir

Tölvupóstur: ernajs@landspitali.is

Sími: 666-1101

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á innrennsliseiningu dagdeildar gigtar

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

04.03.2026

Umsóknarfrestur

16.03.2026