
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í hjúkrun barna - Barnadeild Barnaspítala Hringsins
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
04.03.2026
Umsóknarfrestur
23.03.2026
Sérfræðingur í hjúkrun barna - Barnadeild Barnaspítala Hringsins
Laust er til umsóknar starf sérfræðings í hjúkrun barna á barnadeild Barnaspítala Hringsins. Við leitum eftir kraftmiklum sérfræðingi í hjúkrun til að efla öryggi, gæði og framþróun í þjónustu deildarinnar. Starfið er unnið í nánu samstarfi við deildarstjóra, stjórnendateymi barnadeildar og annað samstarfsfólk.
Um tvískipt starf er að ræða, annars vegar klínísk vinna á deild og hins vegar staða sérfræðings í hjúkrun. Starfshlutfall er 50-100% og er starfið laust frá 1. apríl 2026 eða eftir samkomulagi.
Barnaspítali Hringsins hefur forystu í heilbrigðisþjónustu við börn á Íslandi og fjölskyldur þeirra. Þar er veitt fjölbreytt heilbrigðisþjónusta sem krefst mikillar sérhæfingar og náinnar samvinnu við þjónustuþega.
Helstu verkefni og ábyrgð
Klínísk störf í samræmi við gagnreynda þekkingu
Þróun hjúkrunar og þjónustu, innleiðing nýrra verkferla og eftirfylgni
Ráðgjöf til sjúklinga, fjölskyldna og fagaðila
Leiðsögn, kennsla og fræðsla
Rannsóknir og gæðastörf
Innleiðing og eftirfylgd nýrra verkefna
Stuðlar að liðsheild og menningu sálræns öryggis
Starfar í anda þess að sjúkrahúsþjónusta byggir á teymisvinnu
Hæfniskröfur
Meistara- eða doktorspróf í hjúkrun
Íslenskt sérfræðileyfi í hjúkrun barna
Starfsreynsla við hjúkrun barna
Farsæl reynsla af öryggis-, gæða- og umbótastarfi
Farsæl reynsla af kennslu og fræðslu kostur
Leiðtoga- og samskiptahæfileikar
Hæfni til að starfa í teymi
Frumkvæði og drifkraftur
Hreint sakavottorð
Mjög góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í mæltu og rituðu máli
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
Fyrri störf, menntun og hæfni
Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, rannsóknum, gæða- og þróunarverkefnum
Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Ákvörðun um ráðningu í starfið byggist á innsendum gögnum og viðtölum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Umsækjendur skulu framvísa nýju sakavottorði áður en til ráðningar getur komið, sbr. meginreglur laga um barnavernd sem m.a. koma fram í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2002.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, Hjúkrun, Sérfræðingur í hjúkrun
Tungumálahæfni: Íslenska 5/5
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 23.03.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í hjúkrun barna - Barnadeild Barnaspítala Hringsins
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
04.03.2026
Umsóknarfrestur
23.03.2026