Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Mennta­skólinn að Laugar­vatni

Upplýsingar um starf

Starf

Dönskukennari við Menntaskólann að Laugarvatni 2026-2027

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

06.03.2026

Umsóknarfrestur

18.03.2026

Dönskukennari við Menntaskólann að Laugarvatni 2026-2027

Menntaskólinn að Laugarvatni óskar eftir að ráða dönskukennara. Menntaskólinn að Laugarvatni er framhaldsskóli sem byggir á bekkjakerfi. Boðið er upp á nám til stúdentsprófs á bóknámsbrautum; náttúruvísindabraut og félags- og hugvísindabraut. Áhugasömum um starfið er einnig bent á að kynna sér vel þær stefnur og áætlanir sem skólinn hefur sett sér varðandi jafnréttismál, EKKO mál og fleira en starfsfólk skólans skal vinna í takti við þær áherslur.

Helstu verkefni og ábyrgð

Kennsla í áföngum í dönsku á báðum brautum skólans. Kennarinn ber ábyrgð á kennslu, undirbúningi og námsmati í viðkomandi faggrein og tekur þátt í faglegu samstarfi kennara og starfsfólks við skólann.

Hæfniskröfur

Umsækjendur skulu hafa réttindi til að nota starfsheitið kennari (séu með leyfisbréf sem kennari) og vera með sérhæfingu í viðkomandi faggrein til að kenna á 2.-4. hæfnisþrepi.

Umsækjandi skal:

  • Uppfylla kröfur um menntun og hæfni skv. lögum nr. 95/2019

  • Hafa metnað, frumkvæði, öguð vinnubrögð og jákvætt hugarfar að leiðarljósi í starfi

  • Búa yfir samskiptafærni, þjónustulund og hæfni til að starfa með öðrum sem og að vinna sjálfstætt

  • Mjög góð tölvukunnátta og þekking á upplýsingatækni er nauðsynleg, til að mynda þekking og kunnátta í kennslukerfum og Office365.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.

Umsóknum skal skilað í gegnum Starfatorg, www.starfatorg.is. Náms- og starfsferilsskrá skal fylgja innsendri umsókn ásamt þeim gögnum í viðhengi sem umsækjendur telja skipta máli í ráðningarferlinu, t.d. afrit af prófskírteinum og leyfisbréfi (staðfesting á menntun og starfsréttindum). Kynningarbréf skal fylgja umsókn. Umsækjendur þurfa að hafa hreina sakaskrá.

Ráðið er í starfið frá og með 1. ágúst 2026 og ráðning til eins árs.

Starfshlutfall er 50%

Umsóknarfrestur er til og með 18.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Jóna Katrín Onnoy Hilmarsd.

Skólameistari

Tölvupóstur: jonak@ml.is

Sími: 8959515

Þjónustuaðili

Mennta­skólinn að Laugar­vatni

Upplýsingar um starf

Starf

Dönskukennari við Menntaskólann að Laugarvatni 2026-2027

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

06.03.2026

Umsóknarfrestur

18.03.2026