
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Ert þú hjúkrunarfræðingurinn sem við leitum eftir?
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
20-100%
Starf skráð
04.03.2026
Umsóknarfrestur
18.03.2026
Ert þú hjúkrunarfræðingurinn sem við leitum eftir?
Hjúkrunarfræðingur á hjarta-, lungna-, augnskurðdeild og nýrnalækningadeild.
Tímavinna eða fast starfshlutfall - þú velur hvað hentar þér best!
Við leitum að áhugasömum hjúkrunarfræðingum sem vilja vera hluti af spennandi og fjölbreyttu starfsumhverfi. Á deildinni færðu tækifæri til að vinna með fjölbreyttum sjúklingahópi hjarta-, lungna-, augn- og nýrnasjúklingum. Þú þróar færni þína á blandaðri deild skurð- og lyflækninga og velur þér vinnufyrirkomulag sem hentar þér best, hvort sem það er fast starf eða sveigjanleg tímavinna.
Við tökum vel á móti öllum
Ertu nýútskrifaður? Frábært! Við veitum markvissa handleiðslu og fræðslu.
Hefurðu ekki unnið á Landspítala áður? Komdu bara! Við þjálfum þig vel.
Er langt síðan þú vannst við hjúkrun? Ekkert mál, við styðjum þig í gegnum aðlögunina og hvetjum þig eindregið til að sækja um.
Af hverju að velja okkur?
Þú verður hluti af öflugum og áhugasömum hópi hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða sem tekur vel á móti nýju samstarfsfólki. Við leggjum mikla áherslu á að veita góða einstaklingshæfða aðlögun sem er sniðin að þínum þörfum og reynslu.
Vinnuvikan er 36 stundir fyrir starfsfólk í fullri vaktavinnu og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í formi starfsþróunarárs Landspítala.
Hvenær getur þú byrjað?
Störfin eru laus nú þegar eða eftir samkomulagi. Við erum sveigjanleg og hlökkum til að heyra frá þér! Þetta gæti orðið upphafið að spennandi ferðalagi í hjúkrun.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð
Taka virkan þátt í þróun og uppbyggingu verkefna á deild
Fylgjast með nýjungum í hjúkrun
Taka þátt í þverfaglegri teymisvinnu
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi hjúkrunarfræðings
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Góð samskiptahæfni, jákvæðni og áhugi á teymisvinnu
Hæfni til að vinna vel undir álagi
Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 3/5, enska 3/5
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 20-100%
Umsóknarfrestur er til og með 18.03.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Ert þú hjúkrunarfræðingurinn sem við leitum eftir?
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
20-100%
Starf skráð
04.03.2026
Umsóknarfrestur
18.03.2026