
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í hjúkrun nýbura - Vökudeild Barnaspítala Hringsins
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
04.03.2026
Umsóknarfrestur
18.03.2026
Sérfræðingur í hjúkrun nýbura - Vökudeild Barnaspítala Hringsins
Laust er til umsóknar starf sérfræðings í hjúkrun nýbura á Vökudeild Barnaspítala Hringsins. Við leitum að kraftmiklum sérfræðingi í hjúkrun til að efla öryggi, gæði og framþróun í þjónustu deildarinnar með áherslu á hjúkrun nýbura í fyrirburaeftirliti og þjónustu við börn sem útskrifast með sondu, súrefni eða hafa aðrar hjúkrunartengdar þarfir eftir útskrift af Vökudeild. Að auki er gert ráð fyrir aðkomu sérfræðings að mótun og stofnun fyrirhugaðrar nýburamóttöku á Landspítala. Starfið er unnið í nánu samstarfi við deildarstjóra, stjórnendateymi barnadeilda og annað samstarfsfólk.
Starfshlutfall er 80-100% þar sem gert er ráð fyrir vaktavinnu á deild að hluta á móti dagvinnu. Starfið er laust frá 1. apríl 2026 eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Klínísk störf í samræmi við gagnreynda þekkingu
Þróun hjúkrunar og þjónustu, innleiðing nýrra verkferla og eftirfylgni
Ráðgjöf til sjúklinga, fjölskyldna og fagaðila
Leiðsögn, kennsla og fræðsla
Rannsóknir og gæðastörf
Innleiðing nýrra verkefna
Stuðlar að liðsheild og menningu sálræns öryggis
Starfar í anda þess að sjúkrahúsþjónusta byggir á teymisvinnu
Hæfniskröfur
Meistara- eða doktorspróf í hjúkrun
Íslenskt sérfræðileyfi í hjúkrun barna/nýbura
Starfsreynsla við hjúkrun nýbura
Leiðtoga- og samskiptahæfileikar
Reynsla af teymisvinnu
Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
Fyrri störf, menntun og hæfni
Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, rannsóknum, gæða- og þróunarverkefnum
Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Umsækjendur skulu framvísa nýju sakavottorði áður en til ráðningar getur komið, sbr. meginreglur laga um barnavernd sem m.a. koma fram í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2002.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, Sérfræðingur í hjúkrun, hjúkrun
Tungumálahæfni: íslenska 4/5,
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 18.03.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í hjúkrun nýbura - Vökudeild Barnaspítala Hringsins
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
04.03.2026
Umsóknarfrestur
18.03.2026