Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Land og skógur

Upplýsingar um starf

Starf

Mannauðs- og launafulltrúi hjá Landi og skógi

Staðsetning

Óstaðbundið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

25.03.2026

Umsóknarfrestur

13.04.2026

Mannauðs- og launafulltrúi hjá Landi og skógi

Land og skógur óskar eftir að ráða metnaðarfullan, drífandi og útsjónarsaman einstakling í starf mannauðs- og launafulltrúa á svið Mannauðs og miðlunar.

Starfið er án staðsetningar og hægt að sinna því frá öllum starfstöðvum stofnunarinnar. Næsti yfirmaður er sviðstjóri sviðs Mannauðs og miðlunar. Á sviðinu starfar góður hópur sem sér um mannauðsmál, launavinnslu, skjalamál og miðlun upplýsinga ásamt fleiri verkefnum sem tengjast mannauðsmálum og miðlun.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn launavinnsla í mannauðskerfi Orra og Vinnustund

  • Upplýsingagjöf og ráðgjöf varðandi laun og kjaratengd mál

  • Umbætur og eftirlit með ferlum tengdum mannauðsmálum

  • Aðkoma að fræðslu og styrkjamálum

  • Aðkoma að ráðningum og móttöku nýs starfsfólks

  • Önnur tilfallandi verkefni á sviði Mannauðs og miðlunar

Hæfniskröfur

  • Menntun og reynsla sem nýtist í starfi

  • Menntun í mannauðsstjórnun er kostur

  • Þekking á launakerfi Orra og Vinnustund er skilyrði

  • Þekking og reynsla af launavinnslu er skilyrði

  • Þekking á túlkun kjara- og stofnanasamninga er kostur

  • Góð greiningarhæfni og nákvæmni

  • Reynsla og geta til að vinna í teymi

  • Góð íslenskufærni, nákvæm og öguð vinnubrögð

  • Rík þjónustulund, jákvæðni og samskiptahæfni

  • Frumkvæði og sjálfstæði

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Land og skógur er þekkingarstofnun á sviði gróður- og jarðvegsauðlinda og gegnir mikilvægu rannsókna-, eftirlits- og fræðsluhlutverki við að vernda, endurheimta og bæta þessar auðlindir Íslands með uppgræðslu lands, ræktun nýrra skóga og með því að stuðla að sjálfbærri landnýtingu.

Markmið Lands og skógar er að vera eftirsóttur vinnustaður fyrir starfsfólk með fjölbreytta menntun og bakgrunn. Þar er starfsfólki búin góð vinnuaðstaða, greiður aðgangur að upplýsingum og fjölbreyttir möguleikar á símenntun. Land og skógur hefur innleitt græn skref í ríkisrekstri. Þá hefur stofnunin sett sér umhverfis- og loftslagsáætlun með tímasettum markmiðum ásamt áætlunum um réttindi, vernd og ábyrgð starfsfólks, s.s. áætlanir um áreitni og einelti ásamt viðbrögðum við slíku.

Með umsókn skal fylgja afrit af prófskírteinum og náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku. Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum ásamt frammistöðu í viðtölum. Starfið hentar öllum kynjum og horft verður til jafnréttisáætlunar við ráðningu.

Auglýsingin getur gilt í sex mánuði frá birtingu.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 13.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sigurbjörg Bjarney Ólafsdóttir

Tölvupóstur: sigurbjorg.bjarney.olafsdottir@landogskogur.is

Sími: 8993093

Hanna Þóra Hauksdóttir

sviðstjóri Mannauðs og miðlunar

Tölvupóstur: hanna.thora.hauksdottir@landogskogur.is

Þjónustuaðili

Land og skógur

Upplýsingar um starf

Starf

Mannauðs- og launafulltrúi hjá Landi og skógi

Staðsetning

Óstaðbundið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

25.03.2026

Umsóknarfrestur

13.04.2026