
Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Skemmtileg sumarstörf- Almennur starfsmaður
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
40-100%
Starf skráð
02.03.2026
Umsóknarfrestur
30.04.2026
Skemmtileg sumarstörf- Almennur starfsmaður
Heimahjúkrun HH leitar eftir almennum starfsmönnum í sumarstörf. Um er að ræða tímabundin störf þar sem unnið er á morgun-, kvöld- og helgarvöktum með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Starfshlutfall er 40-100% eða skv. samkomulagi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 15. maí nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sinnir heimahjúkrun í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði og er með aðsetur að Miðhrauni 4 í Garðabæ. Hlutverk heimahjúkrunar er að veita einstaklingsmiðaða hjúkrun þar sem forvarnir, heilsuvernd, heilsuefling, fagleg þekking og samstarf er haft að leiðarljósi. Einstaklingshæfð heimahjúkrun er sérsniðin að þörfum hvers og eins.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið er mjög fjölbreytt og gefandi. Starfsmaður aðstoðar við umönnun ásamt því að veita skjólstæðingum félagslegan stuðning. Hann vinnur náið í teymi ásamt sjúkraliðum og hjúkrunarfræðingum þar sem teymisstjóri sem er hjúkrunarfræðingur fer fyrir teyminu. Starfsmaður mun hafa bifreið til afnota á vinnutíma. Starfið gerir kröfu um góða íslenskukunnáttu.
Hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi
Reynsla af ummönnun skilyrði
Sjálfstæði í starfi
Mikil samskiptahæfni og rík þjónustulund
Gilt ökuleyfi
Góð íslenskukunnátta skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til að óska eftir hreinu sakavottorði.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 40-100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.04.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Skemmtileg sumarstörf- Almennur starfsmaður
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
40-100%
Starf skráð
02.03.2026
Umsóknarfrestur
30.04.2026