Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðilæknir í háls-, nef- og eyrnalækningum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

06.03.2026

Umsóknarfrestur

31.03.2026

Sérfræðilæknir í háls-, nef- og eyrnalækningum

Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis við háls-, nef- og eyrnalækningar á skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu Landspítala. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. september 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Leitað er eftir jákvæðum og metnaðarfullum sérfræðilækni með viðbótarþekkingu í krabbameinsskurðlækningum höfuðs og háls til að annast sérhæfða meðferð og eftirfylgd.

Við háls-, nef og eyrnalækningar starfa um 15 sérfræðilæknar í öflugum þverfaglegum teymum og í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir spítalans. Sérgreinin býður upp á líflegt og krefjandi starfsumhverfi og mikil tækifæri til starfsþróunar. Áhersla er lögð á góða þjónustu, virka teymisvinnu og stöðugar umbætur í þágu sjúklinga. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum góða aðlögun.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sérfræðistörf í samráði við yfirlækni sérgreinarinnar, s.s. greining, meðferð og eftirfylgd sjúklinga með vandamál er tengjast sérgreininni, m.a þátttaka í samráðskvaðningum og göngudeildarþjónustu.

  • Þátttaka í teymisvinnu

  • Þátttaka í vöktum sérgreinarinnar

  • Þátttaka í kennslu sérnámslækna og læknanema

  • Þátttaka í vísindastarfi í samstarfi við yfirmann

Hæfniskröfur

  • Íslenskt sérfræðileyfi í háls-, nef- og eyrnalækningum

  • Almenn reynsla í greiningu og meðferð sjúkdóma sérgreinarinnar

  • Viðbótarþekking/ sérnám í krabbameinsskurðlækningum höfuðs og háls er nauðsynleg

  • Reynsla í kennslu og vísindavinnu æskileg

  • Hæfni og geta til að vinna í teymi

  • Hæfni til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði

  • Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.3 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.

Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:

  • Fyrri störf, menntun og hæfni

  • Félagsstörf og umsagnaraðila

Nauðsynleg fylgiskjöl:

  • Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum.

  • Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum.

  • Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed

  • Aðgerðarskrá (síðustu 5 ára) sem sýnir fjölda og gerð aðgerða sem viðkomandi hefur framkvæmt sem aðalskurðlæknir.

  • Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið.

Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum umsóknargögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, læknir, sérfræðilæknir

Tungumálahæfni: enska 4/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 31.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Arnar Þór Guðjónsson

Tölvupóstur: arnarg@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðilæknir í háls-, nef- og eyrnalækningum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

06.03.2026

Umsóknarfrestur

31.03.2026