
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Teymisstjóri á endurhæfingardeild Grensási
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
13.03.2026
Umsóknarfrestur
25.03.2026
Teymisstjóri á endurhæfingardeild Grensási
Við leitum eftir öflugri og jákvæðri fagmanneskju í spennandi starf teymisstjóra sem hefur áhuga á að taka virkan þátt í áframhaldandi þróun og uppbyggingu endurhæfingarþjónustu á Grensási.
Teymisstjóri gegnir lykilhlutverki í samhæfingu þverfaglegs samstarfs og hefur yfirsýn yfir framgang meðferðar sjúklinga á legudeildinni. Markmiðið er að tryggja samfellda, markvissa og árangursríka endurhæfingu fyrir einstaklinga eftir alvarleg veikindi eða slys. Skilyrði er að viðkomandi hafi lokið heilbrigðismenntun sem nýtist í starfi, þá til dæmis hjúkrunarfræði, sjúkraliðanámi eða félagsráðgjöf.
Á Grensási er veitt frumendurhæfing eftir erfið veikindi og slys. Starfsemin er fjölbreytt og áhersla er á þverfaglega samvinnu. Starfsánægja er mikil og starfsmannavelta lítil, þetta er dýrmætt tækifæri til að kynnast öflugri teymisvinnu í þverfaglegu umhverfi. Síðastliðin ár hefur mikil uppbygging verið í starfseminni, þjálfunarsundlaug verið endurgerð og hannaður meðferðargarður við húsið. Glæsileg viðbygging verður opnuð árið 2027 og verður öll aðstaða þar eins og best verður á kosið.
Starfið er laust nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi og er starfshlutfall 100%. Starfið er að mestu leyti dagvinna en kostur er á kvöld- og helgarvinnu eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hafa yfirsýn yfir meðferð og framvindu endurhæfingar hjá sjúklingum
Samskipti við sjúklinga og aðstandendur
Samhæfing þverfaglegs teymis
Skipulagning og stýring á teymisfundum
Leiða fjölskyldufundi og tryggja virka þátttöku aðstandenda
Vinna markvisst að skipulagningu og samhæfingu útskriftarmála
Tryggja tengingu við aðra þjónustu (t.d. félagsþjónustu eða heilsugæslu)
Sinna klínískri vinnu með sjúklingum hluta úr degi
Móttaka hjúkrunar- og sjúkraliðanema og umsjón með skipulagningu verknáms þeirra í samvinnu við menntastofnanir
Hæfniskröfur
Heilbrigðismenntun sem nýtist í starfi; t.d. hjúkrunarfræði, sjúkraliðanám, félagsráðgjöf
Reynsla af þverfaglegri teymisvinnu er æskileg
Framúrskarandi samskiptahæfileikar
Skipulagshæfni og leiðtogahæfileikar
Sjálfstæði, frumkvæði, faglegur metnaður og lausnamiðuð nálgun
Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, teymisstjóri, hjúkrunarfræðingur, sjúkraliði, félagsráðgjafi
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Álmgerði 108 Reykjavík
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 25.03.2026
Nánari upplýsingar veitir
Guðrún Bragadóttir
Tölvupóstur: gudbraga@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Teymisstjóri á endurhæfingardeild Grensási
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
13.03.2026
Umsóknarfrestur
25.03.2026