Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­nesja

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarafleysing - Ljósmóðir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

03.03.2026

Umsóknarfrestur

13.03.2026

Sumarafleysing - Ljósmóðir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) veitir íbúum Suðurnesja fyrsta- og annars stigs heilbrigðisþjónustu. Á HSS eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrasvið og hjúkrunarsvið. Framundan er víðtæk uppbygging á stofnuninni, endurskoðun á þjónustuferlum sem og stefnu stofnunarinnar byggðri á Heilbrigðisstefnu til ársins 2030.

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða ljósmóðir í sumarafleysingar á ljósmæðravakt. Um er að ræða vaktavinnu. Hægt er að hefja störf eftir samkomulagi.

Á HSS er lögð áhersla á góða samvinnu, stuttar boðleiðir og góðan starfsanda.

Helstu verkefni og ábyrgð

Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf en Ljósmæðravaktin er D1 fæðingastaður þar sem heilbrigðar konur geta fætt og leggur áherslu á samfellda ljósmæðraþjónustu. Ljósmóðir sinnir meðgönguvernd, sængurlegu, göngudeildarþjónustu, krabbameinsleit og fæðingahjálp. Ljósmæður starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn. Unnið er á grundvelli þverfaglegs samstarfs sérfræðinga og áhersla lögð á heildarsýn og samþætta þjónustu.

Hæfniskröfur

  • Íslenskt ljósmóðurleyfi

  • Haldgóð þekking á ljósmæðrastarfinu

  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Góð samskiptafærni og vilji til að vinna í teymi

  • Faglegur metnaður

  • Góð íslenskukunnátta

  • Starfsreynsla er kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Ljósmæðrafélag Íslands hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 13.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Guðlaug María Sigurðardóttir

Tölvupóstur: gudlaug.m.sigurdardottir@hss.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­nesja

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarafleysing - Ljósmóðir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

03.03.2026

Umsóknarfrestur

13.03.2026