
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Aðstoðardeildarstjóri á speglunardeild við Hringbraut
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
90-100%
Starf skráð
16.03.2026
Umsóknarfrestur
30.03.2026
Aðstoðardeildarstjóri á speglunardeild við Hringbraut
Laust er til umsóknar starf aðstoðardeildarstjóra á speglunardeild Landspítala. Við leitum eftir metnaðarfullum og framfarasinnuðum hjúkrunarfræðingi með ríkan áhuga á umbóta- og gæðastarfi. Starfið er laust frá 1. apríl 2026 eða eftir samkomulagi. Unnið er í dagvinnu með valkvæðum bakvöktum samkvæmt vaktskipulagi deildarinnar.
Speglunareiningin sinnir bæði almennum speglunum en er einnig sú sérhæfðasta á landinu og sinnir því sjúklingum alls staðar að. Á deildinni starfar um 30 manna hópur samhents starfsfólks, í nánu samstarfi við marga sérfræðinga Landspítala. Starfsstöðvar eru tvær, við Hringbraut þar sem stærri hluti speglana fer fram og í Fossvogi. Deildin er í sókn á mörgum sviðum. Þjónusta við sjúklinga hefur verið bætt og aukin, mikil og góð samvinna er við aðra starfsemi spítalans og hafa svæfingar við flóknari inngrip aukist mikið. Það hefur verið forsenda fyrir því að nýjar tegundir inngripa eru í boði og eru frekari nýjungar og framþróun á stefnuskránni.
Starfsánægja á deildinni er mjög góð og hér skipta góð samskipti og gagnkvæm virðing miklu máli, sem og skýr meðferðarmarkmið og áþreifanlegur árangur. Á deildinni starfar öflugur hópur sem getur miðlað mikilli þekkingu og reynslu. Áhersla er lögð á að taka vel á móti nýju samstarfsfólki og að veita góða og markvissa aðlögun.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Er nánasti samstarfsmaður deildarstjóra
Skipuleggur starfsemi deildarinnar í samráði við hann
Ber ábyrgð á rekstri og mönnun deildarinnar í fjarveru deildarstjóra
Sérstök ábyrgð á tileknum verkefnum sem viðkomandi er falið
Er leiðandi í umbótastarfi og framþróun í hjúkrun speglunarsjúklinga
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Leiðtogahæfni og áhugi á stjórnun
Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum
Skipulagshæfni og lausnamiðuð hugsun
Áhugi á verkefnastjórnun og umbóta- og gæðastarfi
Góð íslenskukunnátta skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, aðstoðardeildarstjóri hjúkrun, hjúkrun, stjórnunarstarf, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 90-100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.03.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Aðstoðardeildarstjóri á speglunardeild við Hringbraut
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
90-100%
Starf skráð
16.03.2026
Umsóknarfrestur
30.03.2026