Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Framhalds­skólinn á Laugum

Upplýsingar um starf

Starf

Framhaldsskólakennari

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

03.03.2026

Umsóknarfrestur

16.03.2026

Framhaldsskólakennari

Framhaldsskólinn á Laugum auglýsir eftir kennara í raungreinum (líffræði, jarðfræði, efnafræði og eðlisfræði eða skyldum greinum) við skólann. Kostur ef viðkomandi getur kennt stærðfræði.

Helstu verkefni og ábyrgð

Kennarinn

  • vinnur samkvæmt Aðalnámskrá framhaldsskóla, grein 1.3

  • annast kennslu og undirbúning hennar samkvæmt markmiðum gildandi skóla- og aðalnámskrá

  • gerir kennsluáætlun á því formi sem óskað er eftir

  • annast námsmat, skráir einkunnir og viðveru og heldur nemendum reglulega upplýstum um stöðu sína

  • leiðbeinir nemendum um vinnubrögð í námi

  • veitir nemendum og öðrum sem til hans leitar upplýsingar um starfshætti skólans

  • tekur þátt í þróunar- og umbótastarfi skólans

  • ber ábyrgð á sí- og endurmenntun sinni

  • vinnur samkvæmt siðareglum

  • annast önnur verkefni sem honum eru falin og samkomulag er um

  • ber ábyrgð á að verkefni sem undir hann falla séu unnin samviskusamlega og innan settra tímamarka

Hæfniskröfur

Umsækjendur þurfa að hafa hæfni og rétt til að nota starfsheitið kennari og sérhæfingu/reynslu til að kenna greinar á auglýstu sviði á 2.-4. hæfniþrepi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla. Að auki þarf umsækjandinn að vera

  • sjálfstæður í vinnubrögðum

  • gæddur skipulagshæfileikum

  • gæddur frumkvæði

  • gæddur þjónustulipurð

  • gæddur hæfni og lipurð í samskiptum

  • með góða tölvukunnáttu

  • með vilja og getu til að takast á við margvísleg verkefni, þróunarvinnu og framsækni í skólastarfi á skemmtilegum vinnustað

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.

Umsóknum skulu fylgja upplýsingar um nám- og starfsferil ásamt afriti af prófskírteinum og leyfisbréfum sem og sakavottorð. Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og sýn viðkomandi á sjálfum/sjálfri sér sem kennara er æskilegt. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026. Allt fólk er hvatt til þess að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 16.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sigurbjörn Árni Arngrímsson

Skólameistari

Tölvupóstur: sarngrim@laugar.is

Sími: 464-6301

Þjónustuaðili

Framhalds­skólinn á Laugum

Upplýsingar um starf

Starf

Framhaldsskólakennari

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

03.03.2026

Umsóknarfrestur

16.03.2026