
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sálfræðiþjónusta
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
03.03.2026
Umsóknarfrestur
24.03.2026
Sálfræðiþjónusta
Sálfræðiþjónusta Landspítala vill ráða til starfa fimm metnaðarfulla og sjálfstæða sálfræðinga með góða samskiptafærni og áhuga á fjölbreyttu starfi í þverfaglegu spítalaumhverfi. Þrjú hinna auglýstu starfa eru ótímabundin og tvö eru tímabundin vegna afleysinga.
Um er að ræða faglega krefjandi störf á spennandi vettvangi fyrir sálfræðinga sem hafa áhuga á nýsköpun og framþróun í starfi. Landspítali er þverfaglegur vinnustaður og býður upp á líflegt starfsumhverfi. Störfin eru innan meðferðareiningar geðrofssjúkdóma t.d. í geðrofs- og samfélagsgeðteymi og á geðgjörgæslu og fela fyrst og fremst í sér greiningar- og meðferðarvinnu með fólki sem er að takast á við geðrofssjúkdóm eða annan alvarlegan geðvanda. Að auki er eitt tímabundið starf í bráða- og ráðgjafaþjónustu geðþjónustu.
Hjá Sálfræðiþjónustunni starfa 80 sálfræðingar í ólíkum þverfaglegum teymum á ýmsum deildum Landspítala. Sálfræðiþjónustan er í stöðugri framþróun og unnið að fjölbreyttum umbótaverkefnum. Margvísleg tækifæri eru til að dýpka þekkingu í greiningu og meðferð. Lögð er áhersla á að sálfræðingar á Landspítala fái öfluga handleiðslu og símenntun í faginu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Greining, mat og meðferð á geðrænum vanda, gagnreynd sálfræðimeðferð og ráðgjöf
Einstaklings- og hópmeðferð
Námskeiðahald og fræðsla
Handleiðsla og þjálfun nema í klínískri sálfræði í samræmi við reynslu
Þátttaka í þróun og uppbyggingu sálfræðiþjónustu á Landspítala
Þátttaka og uppbygging á þverfaglegri teymisvinnu
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi sálfræðings
Þekking og reynsla af sálfræðilegri greiningu og sálmeinafræði
Þekking og reynsla af gagnreyndum aðferðum, s.s. hugrænni atferlismeðferð
Áhugi á að vinna í spítalaumhverfi, reynsla af því að hafa unnið í spítalaumhverfi er kostur
Reynsla af þátttöku í þverfaglegri teymisvinnu heilbrigðisstétta æskileg
Framúrskarandi samskiptahæfni
Hæfni til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði
Góð íslenskukunnátta skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sálfræðingur, teymisvinna
Tungumálahæfni, íslenska 4/5
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 24.03.2026
Nánari upplýsingar veitir
Erla Björg Birgisdóttir
Yfirsálfræðingur Landspítala
Tölvupóstur: erlabbi@landspitali.is
Sími: 697-9026

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sálfræðiþjónusta
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
03.03.2026
Umsóknarfrestur
24.03.2026