Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Deildarstjóri - Neskaupstaður - Skurðdeild
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
90%
Starf skráð
02.03.2026
Umsóknarfrestur
12.03.2026
Deildarstjóri - Neskaupstaður - Skurðdeild
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða deildarstjóra á skurðdeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað. Starfið veitist frá 1. júní eða eftir samkomulagi. Starfshlutfall er 90% eða eftir samkomulagi, um er að ræða dagvinnu og bakvaktir þess á milli.
Helstu verkefni og ábyrgð
Deildarstjóri ber ábyrgð á og tekur þátt í daglegri starfsemi á skurðstofu. Á deildinni starfa að jafnaði 3 hjúkrunarfræðingar, einn fastur skurðlæknir og svæfingalæknir og einnig koma aðrir sérfræðingar reglulega. Skurðhjúkrunarfræðingur sinnir útköllum á skurðstofu og sér um undirbúning sjúklinga fyrir aðgerðir inni á skurðstofu, aðstoðar við framkvæmd aðgerða og sér um verkfæri og tækjabúnað sem við á.Vegna minnkaðrar starfsemi skurðdeildarinnar yfir orlofstímann felst í starfinu afleysing á öðrum deildum Umdæmissjúkrahússins í samráði við viðkomandi.
Hæfniskröfur
Krafist er íslensks hjúkrunarleyfis og sérnáms í skurðhjúkrun æskilegt. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf. Sé sótt um í opinni starfsumsókn ber að tilgreina við hvað viðkomandi óskar að starfa og hvar. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 90%
Umsóknarfrestur er til og með 12.03.2026
Nánari upplýsingar veitir
Sigríður Kristinsdóttir
Tölvupóstur: sigridur.kristinsdottir@hsa.is
Jón H H Sen
Tölvupóstur: jon.sen@hsa.is
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Deildarstjóri - Neskaupstaður - Skurðdeild
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
90%
Starf skráð
02.03.2026
Umsóknarfrestur
12.03.2026