Þjónustuaðili
Heilbrigðisráðuneytið
Upplýsingar um starf
Starf
Forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
26.02.2026
Umsóknarfrestur
23.03.2026
Forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri
Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri (SAk). Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til 5 ára frá 1. júní 2026.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sjúkrahúsið á Akureyri starfar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007. Sjúkrahúsið á Akureyri er kennslusjúkrahús og þekkingarstofnun sem veitir sérfræðiþjónustu í helstu greinum læknisfræði og hjúkrunarfræði sem og almenna sjúkrahúsþjónustu í sínu umdæmi. Þá annast sjúkrahúsið starfsnám í heilbrigðisvísindagreinum og starfar í nánum tengslum við skóla á sviði menntunar heilbrigðisstétta og rannsókna í heilbrigðisvísindum. Sjúkrahúsið á Akureyri er annað stærsta sjúkrahús landsins og lögum samkvæmt varasjúkrahús Landspítala. Að jafnaði eru tæplega 700 manns starfandi á SAk.
Forstjóri ber ábyrgð á að Sjúkrahúsið á Akureyri starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf sem ráðherra setur honum. Forstjóri ber ábyrgð á starfsemi og þjónustu stofnunarinnar, að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma sé í samræmi við lög um opinber fjármál nr. 123/2015 og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt.
Lögum samkvæmt skal forstjóri hafa háskólamenntun og/eða reynslu af rekstri og stjórnun sem nýtist í starfi.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun á framhaldsstigi sem nýtist í starfi er skilyrði.
Hæfni í mannlegum samskiptum ásamt leiðtogahæfileikum er skilyrði.
Þekking og reynsla af stjórnun á rekstri í heilbrigðisþjónustu er mikilvæg.
Þekking og reynsla af áætlunargerð og fjármálum hins opinbera er æskileg.
Farsæl reynsla af stjórnun mannauðsmála er kostur.
Reynsla af stefnumótun í heilbrigðisþjónustu er kostur.
Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu er kostur
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Skýr framtíðarsýn fyrir starfsemi sjúkrahússins og heilbrigðiskerfið.
Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
Frekari upplýsingar um starfið
Um launakjör fer samkvæmt 39. gr. a laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá með upplýsingar um menntun ásamt menntunargögnum og ítarlegu kynningarbréfi á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni umsækjanda í embættið.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun í embættið hefur verið tekin.
Ráðgefandi hæfisnefnd skipuð af heilbrigðisráðherra mun meta hæfni og hæfi umsækjenda og skila greinargerð til ráðherra skv. 39. gr. b. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 23.03.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Heilbrigðisráðuneytið
Upplýsingar um starf
Starf
Forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
26.02.2026
Umsóknarfrestur
23.03.2026