
Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Skrifstofustjóri - Heilsugæslan Árbæ
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
11.03.2026
Umsóknarfrestur
01.04.2026
Skrifstofustjóri - Heilsugæslan Árbæ
Heilsugæslan Árbæ leitar að drífandi einstakling í starf skrifstofustjóra. Viðkomandi þarf að vera sjálfstæður með frábæra skipulags- og samskiptahæfni.
Skrifstofustjóri er lykilaðili í stuðningi við forstöðumann á sviði rekstrar-, mannauðs- og gæðamála. Starfið felur í sér bæði skipulagningu, eftirfylgni og virka þátttöku í daglegum rekstri stöðvarinnar. Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf á spennandi vettvang, fyrir einstakling sem hefur áhuga á að taka þátt í þverfaglegri samvinnu fagstétta með hag skjólstæðingsins að leiðarljósi.
Á Heilsugæslunni Árbæ starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Hjá okkur ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu
Um er að ræða 100% ótímabundið starf og er æskilegt að viðkomandi getið hafið störf 1. júní eða eftir nánara samkomulagi.
Frekari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (https://island.is/s/hh).
Helstu verkefni og ábyrgð
Stýrir daglegum rekstri skrifstofu og afgreiðslu, m.a. móttöku og símasvörun
Skipuleggur vinnufyrirkomulag, vaktir og frí heilsugæslu- og móttökuritara
Er forstöðumanni til aðstoðar í rekstri, mannauðs- og gæðamálum
Hefur yfirsýn yfir aðgengi, móttöku og flæði skjólstæðinga
Annast vinnuskipulag, yfirferð vinnustunda og þátttöku í ráðningum
Mótun, samræming og eftirfylgni verklagsreglna
Umsjón með innkaupum, birgðum, skjalavörslu, rafrænum sendingum og frágangi sjúkraskráa
Stuðlar að góðri vinnustaðamenningu og tekur þátt í umbótastarfi
Sinnir kerfisumsjón á starfsstöð og vinnuaðstöðu starfsfólks
Vinnur eftir þörfum einnig í afgreiðslu
Sinnir öðrum þeim verkefnum sem yfirmaður felur viðkomandi
Hæfniskröfur
Háskólamenntun (B.A. eða B.S.) sem nýtist í starfi
Reynsla af rekstri, mannauðsmálum og/eða stjórnun æskileg
Þekking og áhugi á gæðamálum og umbótastarfi
Mjög góð skipulagshæfni og færni í forgangsröðun
Sjálfstæði, frumkvæði og hæfni til að vinna undir álagi
Mjög góð samskiptafærni og hæfni til samstarfs við ólíka fagaðila
Góð tölvukunnátta og kerfislæsi er skilyrði
Þekking á sjúkraskrárkerfi er kostur
Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti og ágæt enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdarstjóra mannauðssviðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt að óska eftir hreinu sakavottorði.
Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 01.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Tinna Karen Árnadóttir
Fagstjóri lækninga
Tölvupóstur: tinna.karen.arnadottir@heilsugaeslan.is
Sími: 513-5200

Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Skrifstofustjóri - Heilsugæslan Árbæ
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
11.03.2026
Umsóknarfrestur
01.04.2026