Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á taugalækningadeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

27.02.2026

Umsóknarfrestur

09.03.2026

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á taugalækningadeild

Laust er til umsóknar starf aðstoðardeildarstjóra hjúkrunar á taugalækningadeild B2 í Fossvogi.

Við sækjumst neftir metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi með afburða samskiptahæfni sem hefur brennandi áhuga á hjúkrun og stjórnunarstörfum ásamt þátttöku í gæða- og umbótastarfi. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. apríl 2026 eða eftir nánara samkomulagi.

Taugalækningadeild þjónar sjúklingum með taugasjúkdóma og starfa þar um 60 einstaklingar í þverfaglegu teymi. Í boði er einstakt tækifæri til að sérhæfa sig í hjúkrun sjúklinga með taugasjúkdóma auk þess að vera hluti af stjórnendateymi deildarinnar og taka þátt í mikilvægri uppbyggingu slagþjónustu á Íslandi.

Aðstoðardeildarstjóri er virkur þátttakandi í stjórnendateymi deildarinnar ásamt deildarstjóra og er starfið því frábært tækifæri fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í stjórnunarstörfum. Aðstoðardeildarstjóri fylgir eftir ákvörðunum um skipulag hjúkrunar og verklag á deild sem og innleiðingu nýjunga í hjúkrun er stuðla að auknum gæðum hjúkrunar, gagnreyndum starfsháttum og öryggi sjúklinga. Á deildinni er mikið er lagt upp úr þverfaglegri teymisvinnu allra viðkomandi starfstétta.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinnur náið með hjúkrunardeildarstjóra að skipulagningu á starfsemi deildarinnar og mótun liðsheildar

  • Ber ábyrgð á þeim verkefnum sem hjúkrunardeildarstjóri felur honum í samræmi við starfslýsingu

  • Er leiðandi í klínísku starfi, öryggis- og gæðastarfi og öðru umbótastarfi sem stuðlar að bættri þjónustu og framþróun í hjúkrun.

  • Hefur umsjón með móttöku og aðlögun nýrra starfsmanna og nemenda á deildinni

  • Er leiðandi í teymisvinnu innan deildar og stuðlar að árangursríku samstarfi innan og utan deildar

  • Ber ábyrgð á starfsemi, mönnun og rekstri deildar í fjarveru og í samráði við hjúkrunardeildarstjóra

  • Er ábyrgur fyrir skipulagningu og framkvæmd hjúkrunar í fjarveru hjúkrunardeildarstjóra

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur

  • Stjórnunarþekking og leiðtogahæfni

  • Jákvætt viðmót og framúrskarandi samskiptahæfni

  • Skipulögð, vönduð og öguð vinnubrögð

  • Þekking á þjónustuþáttum Landspítala

  • Þekking á verkefnastjórnun og umbótastarfi er æskileg

  • Góð íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, aðstoðardeildarstjóri hjúkrun, hjúkrun, stjórnunarstarf

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 09.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sigríður Árna Gísladóttir

Tölvupóstur: sigrgisl@landspitali.is

Sími: 897-0788

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á taugalækningadeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

27.02.2026

Umsóknarfrestur

09.03.2026