Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnastjóri við Massagreiningasetur (MassHei)

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

24.03.2026

Umsóknarfrestur

07.04.2026

Verkefnastjóri við Massagreiningasetur (MassHei)

Laust er til umsóknar fullt starf verkefnastjóra hjá Massagreiningasetri Heilbrigðisvísindastofnunar innan Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Uppsetning, þróun og gilding á mæliaðferðum.

  • Keyrsla á sýnum fyrir rannsakendur og fyrirtæki.

  • Viðhald og lagfæringar á tækjabúnaði.

  • Þjálfun rannsakenda í notkun massagreina.

  • Þátttaka í uppbyggingu á aðstöðu fyrir setrið.

  • Umsjón með flutningi og uppsetningu á rannsóknatækjum setursins.

  • Umsjón með skráningu í Clustermarket.

Hæfniskröfur

  • Doktorspróf með megináherslu á efnagreiningar innan efnafræði, lífefnafræði, lyfjafræði eða skyldra greina

  • Reynsla af efnagreiningu og notkun mismunandi massagreina við mælingu smásameinda, lípíða og próteina

  • Reynsla af sýnameðhöndlun, magngreiningu og gildingu mæliaðferða fyrir lífmörk, lyf og umbrotsefni í mismunandi lífsýnum

  • Reynsla af notkun sérhæfðra forrita við gagnaúrvinnslu fyrir prótein og smásameindir

  • Hafa lokið námskeiðum um viðhald og viðgerðir á vökvagreinum tengdum massagreinum

  • Góð samstarfshæfni og rík þjónustulund

  • Sjálfstæð, skipulögð og lausnamiðuð vinnubrögð

  • Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Í tengslum við endurskoðun á hlutverki Heilbrigðisvísindastofnunar og fyrirhugaðan flutning Heilbrigðisvísindasviðs í nýtt húsnæði er stoðþjónusta sviðsins í þróun. Verkefni og áherslur starfsins kunna því að taka breytingum.

Gert er ráð fyrir að viðkomandi getið hafið störf sem fyrst, eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Ferilskrá

  • Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins

  • Afrit af prófskírteinum

  • Upplýsingar um umsagnaraðila

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 07.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Margrét Þorsteinsdóttir

Tölvupóstur: margreth@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnastjóri við Massagreiningasetur (MassHei)

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

24.03.2026

Umsóknarfrestur

07.04.2026