Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur/hjúkrunarfræðinemi á lyflækningadeild

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

26.02.2026

Umsóknarfrestur

09.03.2026

Hjúkrunarfræðingur/hjúkrunarfræðinemi á lyflækningadeild

Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa á lyflækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri. Um er að ræða 70-100% stöðu í vaktavinnu sem er laus nú þegar eða eftir samkomulagi. Einnig kemur til greina að ráða inn hjúkrunarnema sem lokið hefur a.m.k. 3 námsárum. Unnið er á þrískiptum vöktum í fjölbreyttu og lærdómsríku starfsumhverfi. Staðan er laus nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Á deildinni er lögð áhersla á þverfaglega samvinnu og býður starfið upp á góð tækifæri til að þróa með sér mikla faglega þekkingu og hæfni í sjálfstæðum vinnubrögðum. Boðið er upp á góða aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingi.

Komdu og vertu hluti af öflugu teymi á Sjúkrahúsinu á Akureyri!

Helstu verkefni og ábyrgð

Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum. Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar.

Hæfniskröfur

  • Fullgilt hjúkrunarpróf og gilt íslenskt starfsleyfi sem hjúkrunarfræðingur (á ekki við ef um hjúkrunarnema er að ræða)

  • Reynsla af lyflækningadeild er kostur

  • Góð samskiptahæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð

  • Hæfni og geta til að starfa í teymi

  • Faglegur metnaður og áhugi

  • Góð íslenskukunnátta

  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 09.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Rebekka Héðinsdóttir

Tölvupóstur: rh1013@sak.is

Kristjana Kristjánsdóttir

Tölvupóstur: kristjanak@sak.is

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur/hjúkrunarfræðinemi á lyflækningadeild

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

26.02.2026

Umsóknarfrestur

09.03.2026