Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Líffræðingur - sameindameinafræði, á meinafræðideild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

26.02.2026

Umsóknarfrestur

09.03.2026

Líffræðingur - sameindameinafræði, á meinafræðideild

Rannsóknastofa í sameindameinafræði leitar að líffræðingi til starfa. Við leitum að nákvæmum, metnaðarfullum og skipulögðum einstaklingi sem hefur áhuga á klínískri þjónustustarfsemi, gagnavinnslu og þátttöku í daglegum rekstri rannsóknastofu. Um er að ræða fullt starf og ráðningatími frá 1. maí 2026 eða samkvæmt samkomulagi.

Rannsóknastofa í sameindameinafræði er hluti af meinafræðideild Landspítala og sinnir fjölbreyttum klínískum þjónusturannsóknum á krabbameini. Niðurstöður rannsóknanna nýtast við greiningu og val á meðferð sjúklinga. Auk þess er unnið að vísindarannsóknum á þróun og líffræðilegum eiginleikum krabbameina, sem og áhrifum stökkbreytinga á sjúkdómsgang og meðferð.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Undirbúningur og framkvæmd þjónusturannsókna með aðferðum sameindalíffræði, þ.m.t. háhraðaraðgreiningu (NGS)

  • Skráning, utanumhald og úrvinnsla upplýsinga sem tengjast lífssýnum, rannsóknaniðurstöðum og gæðaeftirliti

  • Þátttaka í daglegum rekstri rannsóknastofunnar, m.a. eftirlit og umsjón með rannsóknabúnaði, pöntunum og skráningu rekstrarvara

  • Þátttaka í endurskoðun og skráningu verkferla og sambærilegt í tengslum við innleiðingu gæðakerfis innan rannsóknastofunnar

Hæfniskröfur

  • Nákvæm og skipulögð vinnubrögð og fagleg ábyrgð

  • Jákvætt viðmót og lausnamiðuð nálgun í starfi

  • BSc. eða MSc. próf í sameindalíffræði, eða skyldum greinum

  • Góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti

  • Góð tölvukunnátta, sérstaklega í Excel og sambærilegum gagnavinnsluforritum

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta.Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Líffræðingur, teymisvinna

Tungumálahæfni: íslenska 5/5, enska 4/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 09.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Rósa Björk Barkardóttir

Tölvupóstur: rosa@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Líffræðingur - sameindameinafræði, á meinafræðideild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

26.02.2026

Umsóknarfrestur

09.03.2026