Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðilæknir á barna- og unglingageðdeild Landspítala

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

25.02.2026

Umsóknarfrestur

11.03.2026

Sérfræðilæknir á barna- og unglingageðdeild Landspítala

Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis á barna- og unglingageðdeild Landspítala.

Á barna- og unglingageðdeild Landspítala er veitt sérhæfð og fjölskyldumiðuð geðheilbrigðisþjónusta fyrir börn að 18 ára aldri. Unnið er í þverfaglegum teymum og í samvinnu við aðrar stofnanir.

Leitað er eftir jákvæðum og metnaðarfullum sérfræðilækni til að annast sérhæfða meðferð og eftirfylgd við sjúklinga okkar.

Starfshlutfall er 80-100% og starfið veitist frá 1. apríl 2026 eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þátttaka í þverfaglegri vinnu teyma

  • Þátttaka í gæða- og umbótastarfi

  • Þátttaka í kennslu- og vísindavinnu í samráði við yfirlækni

  • Bakvaktir sérfræðilækna

Hæfniskröfur

  • Íslenskt sérfræðileyfi í barna- og unglingageðlækningum, geðlækningum, barnalækningum eða heimilislækningum

  • Þekking á og reynsla í félagslegum og geðrænum erfileikum hjá börnum og unglingum

  • Þekking á og reynsla af frávikum í taugaþroska í samspili við geðræna erfiðleika

  • Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

  • Hreint sakavottorð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.3 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.

Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:

  • Fyrri störf, menntun og hæfni

  • Félagsstörf og umsagnaraðila

Nauðsynleg fylgiskjöl:

  • Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum

  • Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum

  • Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed

  • Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið

Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Umsækjendur skulu framvísa nýju sakavottorði áður en til ráðningar getur komið, sbr. meginreglur laga um barnavernd sem m.a. koma fram í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2002.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir

Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5

Staðsetning: Dalbraut, 105 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 11.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Björn Hjálmarsson

Tölvupóstur: bjornhj@landspitali.is

Sími: 543-4300

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðilæknir á barna- og unglingageðdeild Landspítala

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

25.02.2026

Umsóknarfrestur

11.03.2026