
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Starf móttökuritara á göngudeild Klepps
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60-70%
Starf skráð
09.03.2026
Umsóknarfrestur
19.03.2026
Starf móttökuritara á göngudeild Klepps
Hefur þú áhuga á teymisvinnu?
Við leitum eftir þjónustuliprum einstaklingi sem hefur áhuga á fjölbreyttu starfi í krefjandi þverfaglegu umhverfi. Um er að ræða starf í móttöku staðsett á göngudeildinni á Kleppi. Starf í móttöku geðþjónustu krefst mikillar samskiptahæfni, yfirvegunar og einlægs áhuga á að sinna fólki með geðrænan vanda og fjölskyldum þeirra. Starfið felur í sér mikil samskipti, sjálfstæði og fjölbreytt verkefni.
Teymin sem sinna göngudeildarþjónustunni eru átröskunarteymi, DAM teymi, geðhvarfateymi, geðrofs- og samfélagsgeðteymi og göngudeild réttar- og öryggisgeðdeildar. Í teymunum starfar þverfaglegur hópur fólks t.d. hjúkrunarfræðingar, sálfræðingar, læknar, félagsráðgjafar og fleira sérhæft starfsfólk.
Góður starfsandi er ríkjandi og einkennist starfsemin af öflugri þverfaglegri teymisvinnu. Ritarar þjónustunnar gegna þar mikilvægu hlutverki og eru ómissandi hluti af teymisvinnunni.
Starfshlutfall er 60-70% og unnið er í dagvinnu virka daga. Ráðið er í stöðuna frá 15. maí 2026 eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn og sérhæfð ritarastörf s.s. símsvörun, móttaka sjúklinga, tímabókanir, og upplýsingagjöf
Svörun og flokkun á rafrænum samskiptum
Pöntun aðfanga, umsjón með áfyllingum á lager
Önnur tilfallandi verkefni í samráði við stjórnendur
Hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi, að lágmarki stúdentspróf
Jákvætt viðmót, þjónustulipurð og hæfni í samskiptum
Reynsla af ritarastörfum er kostur
Reynsla af starfi á Landspítala er kostur
Áhugi á að sinna fólki með geðvanda og fjölskyldum þeirra
Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði í starfi, sveigjanleiki og útsjónarsemi
Áreiðanleiki og stundvísi
Góð tölvukunnátta er skilyrði, þekking á Sögukerfi Landspítala er kostur
Góð íslensku- og enskukunnátta, önnur tungumál kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, skrifstofumaður, heilbrigðisritari, ritari, skrifstofustörf, móttaka
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5
Staðsetning: Kleppsgarðar, 104 Reykjavík
Starfshlutfall er 60-70%
Umsóknarfrestur er til og með 19.03.2026
Nánari upplýsingar veitir
Sandra Friðriksdóttir
Tölvupóstur: sandraf@landspitali.is
Eygló Einarsdóttir
Tölvupóstur: eygloeie@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Starf móttökuritara á göngudeild Klepps
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60-70%
Starf skráð
09.03.2026
Umsóknarfrestur
19.03.2026