Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn á Austur­landi

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðaryfirlögregluþjónn - Lögreglustjórinn á Austurlandi

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

24.02.2026

Umsóknarfrestur

20.03.2026

Aðstoðaryfirlögregluþjónn - Lögreglustjórinn á Austurlandi

Við embætti Lögreglustjórans á Austurlandi er laust til umsóknar embætti aðstoðaryfirlögregluþjóns með starfsstöð á Egilsstöðum. Um tímabundna setningu er að ræða til eins árs.

Hjá embættinu starfa tæplega fjörutíu manns í víðfeðmu umdæmi sem nær frá Djúpavogi í suðri til Vopnafjarðar í norðri. Tólf þéttbýliskjarnar eru í umdæminu, gott gróskumikið mannlíf, öflug fyrirtæki og stórfengleg náttúra. Alþjóðaflugvöllur er á Egilsstöðum og vikulegar ferjusiglingar Norrænu til Seyðisfjarðar. Sjö landamærahafnir eru í umdæminu. Embætti Lögreglustjórans á Austurlandi er nútímaleg og framsækin stofnun sem er til staðar fyrir alla alltaf. Gildi embættisins eru traust, virðing og framsækni.

Helstu verkefni og ábyrgð

Kveðið er á um verksvið og ábyrgð aðstoðaryfirlögregluþjóns í 6. gr. reglugerðar nr. 1051/2006 um starfsstig innan lögreglunnar auk þess sem starfinu fylgja fleiri verkefni samkvæmt skipulagi embættisins.

  • Aðstoðaryfirlögregluþjónn er yfirlögregluþjóni til aðstoðar og er staðgengill hans.

  • Dagleg yfirstjórn og ábyrgð á starfsstöð embættisins á Egilsstöðum og annarra eininga sem undir starfsstöðina falla.

  • Almenn stefnumótun og umsjón með áætlanagerð, skipulagningu og markmiðasetningar almennrar deildar í samvinnu við yfirlögregluþjón.

  • Umsjón og ábyrgð á almannavörnum, aðgerðastjórnun og viðbragðsáætlunum undir stjórn og í samvinnu við yfirlögregluþjón.

  • Skipulagning og ábyrgð á landamæralöggæslu embættisins undir stjórn yfirlögregluþjóns.

  • Ábyrgð á afgreiðslu löggæslumála og tryggir að reglum og verklagi um framkvæmd löggæslu sé fylgt.

  • Ber ábyrgð á vakta- og orlofsskipulagi á sínu starfssvæði.

  • Uppbygging mannauðs og liðsheildar ásamt ábyrgð á mannauðsmálum þeirra eininga sem undir starfsstöðina falla.

  • Ber ábyrgð á skipulagningu stærri löggæsluaðgerða, umsjón með tækja- og tæknibúnaði löggæslusviðs og ástandi lögreglubifreiða.

  • Ber ábyrgð, ásamt yfirlögregluþjóni á að fjárhagslegur rekstur almennrar deildar löggæslu sé innan fjárheimilda. Tekur þátt í gerð ársskýrslna.

  • Tekur við kvörtunum frá borgurum vegna starfa lögreglunnar og kemur þeim í viðeigandi feril.

  • Önnur störf eða verkefni sem honum kunna að vera falin eða leiðir af venju.

Hæfniskröfur

Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómanámi í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar. Stjórnunarnám frá Lögregluskóla ríkisins, endurmenntun HÍ eða sambærilegt stjórnunarnám er kostur.

Samkvæmt 2. mgr. 14. gr. reglugerðar um starfsstig innan lögreglunnar skal umsækjandi hafa starfað sem lögreglumaður í að minnsta kosti 5 ár frá því að hann lauk prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómanámi í lögreglufræðum.

Mikilvæg hæfni:

  • Þekking og reynsla af lögreglustörfum.

  • Farsæl stjórnunarreynsla innan lögreglu, þ.m.t. stjórnun lögregluaðgerða og skipulagningu löggæslu á stærri viðburðum.

  • Þekking og/eða reynsla af rekstri er kostur.

  • Þekking og reynsla á sviði almannavarna, aðgerðastjórnun og viðbragðsáætlunum.

  • Þekking og reynsla af landamæraeftirliti.

  • Þekking og reynsla á sviði þjálfunar- og búnaðarmála lögreglu.

  • Þekking á nýsköpun og framþróun löggæslu.

  • Góð þekking á landskerfum lögreglu sem og staðgóð almenn tölvukunnátta.

  • Góð íslenskukunnátta, og færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku.

  • Hæfni til að koma fram sem talsmaður embættisins.

  • Önnur menntun og reynsla sem nýtist í starfi.

Mikilvægir eiginleikar:

  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.

  • Leiðtogafærni og færni til að takast á við og leiða breytingar.

  • Frumkvæði og drifkraftur.

  • Lausnamiðað og jákvætt viðhorf.

  • Skipulagshæfni og nákvæm vinnubrögð.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.

Umsókn skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið, auk afrita af prófskírteinum ásamt nöfnum tveggja umsagnaraðila. Umsækjendur eru beðnir um að vanda umsóknir sínar.

Til að staðreyna hvort umsækjandi uppfylli skilyrði e-liðar 2. mgr. 28. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 er lögreglustjóra heimilt skv. 28. gr. a. sömu laga að afla upplýsinga um umsækjendur úr sakaskrá og málaskrám lögreglu.

Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um setningu liggur fyrir. Athygli er vakin á að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Embættið leggur áherslu á jafnrétti og hvetur fólk af öllum kynjum til að sækja um.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 20.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Kristján Ólafur Guðnason

Yfirlögregluþjónn

Tölvupóstur: kog01@logreglan.is

Sími: 4440600

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn á Austur­landi

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðaryfirlögregluþjónn - Lögreglustjórinn á Austurlandi

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

24.02.2026

Umsóknarfrestur

20.03.2026