Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Austur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðarmaður í eldhúsi - Fáskrúðsfjörður - Hjúkrunarheimilið Uppsalir

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

78%

Starf skráð

24.02.2026

Umsóknarfrestur

06.03.2026

Aðstoðarmaður í eldhúsi - Fáskrúðsfjörður - Hjúkrunarheimilið Uppsalir

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða aðstoðarmann í eldhúsi á hjúkrunarheimilinu Uppsölum á Fáskrúðsfirði. Starfshlutfall er 78% eða samkvæmt samkomulagi. Staðan veitist frá 1.maí eða eftir samkomulagi. Vinnutími er kl. 8-16 og önnur hvor helgi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Um er að ræða fjölbreytt störf í eldhúsi hjúkrunarheimilisins Uppsölum.

Hæfniskröfur

Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi og skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Starfsmannafélag Fjarðabyggðar hafa gert.

Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu enda slagorð stofnunarinnar, samvinna um velferð.

Starfshlutfall er 78%

Umsóknarfrestur er til og með 06.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Eygerður Ósk Tómasdóttir

Tölvupóstur: eygerdur.o.tomasdottir@hsa.is

Helga Sturludóttir

Tölvupóstur: helga.sturludottir@hsa.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Austur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðarmaður í eldhúsi - Fáskrúðsfjörður - Hjúkrunarheimilið Uppsalir

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

78%

Starf skráð

24.02.2026

Umsóknarfrestur

06.03.2026