Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Barna- og fjölskyldu­stofa

Upplýsingar um starf

Starf

Ráðgjafi á meðferðarheimilinu Lækjarbakka

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

02.03.2026

Umsóknarfrestur

12.03.2026

Ráðgjafi á meðferðarheimilinu Lækjarbakka

Vilt þú taka þátt í krefjandi og gefandi starfi með unglingum?

Barna- og fjölskyldustofa auglýsir laus til umsóknar tvö störf ráðgjafa á meðferðarheimilinu Lækjarbakka. Heimilið er starfrækt í Gunnarsholti, rétt utan við Hellu. Störfin heyra undir forstöðumann og deildarstjóra heimilisins. Um er að ræða 100% stöður í vaktavinnu. Ráðning er tímabundin til eins árs með möguleika á framlengingu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Einstaklingsbundinn stuðningur við skjólstæðinga og meðferðarvinna í samvinnu við stjórnendur og sálfræðinga.

  • Vinna að tómstundastarfi, starfsþjálfun og stuðningi í námi skjólstæðinga.

  • Samskipti við foreldra og samstarfsaðila.

  • Vinna eftir verklagsreglum og þeim gagnreyndu aðferðum sem unnið er eftir á heimilinu.

  • Umönnun, stuðningur við athafnir daglegs lífs og tryggja öryggi skjólstæðinga.

  • Almenn heimilisstörf.

  • Önnur verkefni í samráði við stjórnendur.

Hæfniskröfur

  • Reynsla og/eða menntun sem nýtist í starfi.

  • Áhugi og/eða reynsla af að vinna meðferðferðarvinnu með unglingum.

  • Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum er nauðsynleg.

  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.

  • Sveigjanleiki og þjónustulund.

  • Gott líkamlegt atgervi og andlegt heilbrigði.

  • Góð íslenskukunnátta í mæltu og rituðu máli.

  • Enskukunnátta æskileg.

  • Gild ökuréttindi.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Við úrvinnslu umsókna um störfin gildir mat Barna- og fjölskyldustofu á hæfni og eiginleikum umsækjenda. Vakin er athygli á að stofnunin aflar sjálf upplýsinga úr sakaskrá áður en viðkomandi hefur störf. Barna- og fjölskyldustofa hvetur öll til að sækja um, óháð kyni.

Með umsóknum skulu fylgja upplýsingar um menntun og fyrri störf. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá birtingu ef starf losnar að nýju innan þess tíma.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 12.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Dögg Þrastardóttir

Tölvupóstur: dogg.thrastardottir@bofs.is

Sími: 5302600

Þjónustuaðili

Barna- og fjölskyldu­stofa

Upplýsingar um starf

Starf

Ráðgjafi á meðferðarheimilinu Lækjarbakka

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

02.03.2026

Umsóknarfrestur

12.03.2026