Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Náttúru­fræði­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Húsráður í Garðabæ

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

20.02.2026

Umsóknarfrestur

02.03.2026

Húsráður í Garðabæ

Náttúrufræðistofnun auglýsir laust til umsóknar 50% starf húsráðs á starfsstöð stofnunarinnar í Garðabæ. Starfið felst í almennri umsjón með húsnæði, bifreiðum og húsbúnaði ásamt þjónustu við starfsfólk þeirra stofnana sem hafa starfsstöð í húsnæðinu. Auk þess er viðkomandi tengiliður vegna aðkeyptrar þjónustu s.s. ræstingar, sorphirðu og fleira.

Leitað er að þjónustulunduðum og handlögnum einstaklingi með jákvætt viðhorf, sem getur unnið sjálfstætt.

Starfið heyrir undir sviðsstjóra rekstrar og mannauðs.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Dagleg umsjón og eftirlit með húsnæði, lóð, bifreiðum og húsbúnaði

  • Umsjón með sorphirðu, umhirðu á lóð, snjómokstri og hálkuvörnum

  • Er tengiliður við verktaka og fyrirtæki vegna þjónustusamninga

  • Umsjón með smærri vöruinnkaupum og rekstrarþáttum

  • Ýmis aðstoð við starfsfólk, sendiferðir og móttaka sendinga.

  • Er öryggivörður á starfsstöð stofnunarinnar í Garðabæ

  • Ýmis önnur tilfallandi störf

Hæfniskröfur

  • Starfsreynsla og þekking sem nýtist í starfi

  • Gild ökuréttindi

  • Samskiptafærni til að skiptast á almennum upplýsingum við starfsfélaga og viðskiptavini

  • Jákvætt viðhorf og þjónustulund

  • Geta til að vinna sjálfstætt eftir skipulagi vinnustaðar og tímaplani

  • Iðnmenntun er kostur

  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti

  • Hreint sakavottorð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Starfshlutfall er 50% og fastur daglegur vinnutími er frá kl. 9-13 virka daga.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Ferilskrá

  • Staðfest afrit prófskírteina ef við á

  • Upplýsingar um umsagnaraðila

  • Stutt kynningarbréf þar sem áhuga fyrir starfinu er lýst og tiltekið hvað umsækjandi getur lagt af mörkum til auglýstra starfsþátta

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um niðurstöðu þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Öll kyn eru hvött til að sækja um störf hjá Náttúrufræðistofnun í samræmi við jafnréttisáætlun og jafnlaunastefnu stofnunar.

Æskilegt er að viðkomandi getið hafið störf í lok apríl.

Um Náttúrufræðistofnun

Á Náttúrufræðistofnun starfa tæplega 80 manns við rannsóknir, kortlagningu og vöktun á náttúru landsins. Starfsandi á stofnuninni er góður og heimilislegur, þar sem leitast er við að bjóða fjölskylduvænan vinnustað og heilsueflandi vinnuumhverfi. Við ráðningar í störf hjá Náttúrufræðistofnun er tekið mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar.

Starfsstöðvar Náttúrufræðistofnunar eru sex, í Garðabæ, á Akranesi, á Breiðdalsvík, í Mývatnssveit, á Raufarhöfn og á Akureyri.

Starfshlutfall er 50%

Umsóknarfrestur er til og með 02.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Lilja Víglundsdóttir

Sviðsstjóri

Tölvupóstur: lilja.viglundsdottir@natt.is

Sími: 430 9000

Heiður Reynisdóttir

Mannauðsstjóri

Tölvupóstur: Heidur.Reynisdottir@natt.is

Sími: 430 9000

Þjónustuaðili

Náttúru­fræði­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Húsráður í Garðabæ

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

20.02.2026

Umsóknarfrestur

02.03.2026