
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Skurðhjúkrunarfræðingur/ hjúkrunarfræðingur á skurðstofur í Fossvogi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
25.02.2026
Umsóknarfrestur
10.03.2026
Skurðhjúkrunarfræðingur/ hjúkrunarfræðingur á skurðstofur í Fossvogi
Við óskum eftir að ráða skurðhjúkrunarfræðinga til starfa á skurðstofur Landspítala í Fossvogi. Einnig kemur til greina að ráða hjúkrunarfræðinga sem hafa áhuga á skurðhjúkrun. Í boði er áhugavert starf með góðu samstarfsfólki þar sem unnið er á þrískiptum vöktum auk bakvakta samkvæmt vaktskipulagi deildar eftir að þjálfun lýkur. Starfishlutfall er samkomulag og eru störfin laus frá 1. apríl 2026 eða eftir nánara samkomulagi.
Á deildinni eru 8 skurðstofur sem þjóna 5 sérgreinum og árlega eru framkvæmdar þar um 6000 aðgerðir. Á deildinni starfa um 90 einstaklingar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, sótthreinsitæknar, skrifstofufólk og sérhæft starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni, sem unnin eru í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum. Gagnreynd þekking, viðurkenndir verkferlar, öryggi sjúklinga og teymisvinna eru höfð í fyrirrúmi.
Í boði er einstaklingsaðlöguð þjálfun eftir þörfum hvers og eins á skemmtilegum vinnustað.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Einstaklingshæfð hjúkrun við undirbúning, framkvæmd og skil í skurðaðgerðum samkvæmt skipulagi deildar
Ákveður, skráir og veitir hjúkrunarmeðferð í samráði við þarfir skjólstæðinga
Ber ábyrgð á meðferð, samkvæmt starfslýsingu og vinnureglum deildar
Þátttaka í teymisvinnu og umbótastarfi deildar
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Sérnám í skurðhjúkrun er kostur
Faglegur metnaður
Góð samskiptahæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
Sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
Áhugi og hæfni til að takast á við breytingar og færni í teymisvinnu
Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, skurðhjúkrunarfræðingur, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 10.03.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Skurðhjúkrunarfræðingur/ hjúkrunarfræðingur á skurðstofur í Fossvogi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
25.02.2026
Umsóknarfrestur
10.03.2026