Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Þjóðleik­húsið

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í bókhaldi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

19.02.2026

Umsóknarfrestur

05.03.2026

Sérfræðingur í bókhaldi

Þjóðleikhúsið leitar að sérfræðingi sem hefur góða reynslu af bókhaldsstörfum til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum á sviði reikningshalds. Við leitum að skipulögðum einstaklingi með góða þekkingu á bókhaldi og skilningi á rekstri og fjárhag, sem hefur ánægju af að vinna með öðrum og vill taka virkan þátt í framþróun á fjármálasviði. Umsækjandi þarf að geta hafið störf 1.maí n.k.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn dagleg bókhaldsstörf og afstemmingar

  • Þátttaka í gerð verkferla reikningshalds og eftirfylgni með þeim

  • Samskipti og aðstoð við stjórnendur og starfsfólk, birgja og aðra hagsmunaaðila

  • Önnur tilfallandi verkefni á fjármálasviði, t.d. þátttaka í umbótaverkefnum, sjálfvirknivæðingu og innleiðingu nýrra ferla og öðrum uppgjörstengdum verkefnum

Hæfniskröfur

  • Reynsla af störfum á sviði bókhalds

  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi

  • Góð almenn tölvukunnátta t.d. í bókhaldskerfum og excel, þekking á umhverfi ríkisstofnana er kostur

  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfsfærni, jákvætt viðmót og þjónustulund

  • Frumkvæði, nákvæmni og fagleg vinnubrögð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Við bjóðum

  • Tækifæri til að taka þátt í þróun og innleiðingu nýrra ferla og lausna

  • Boðið er upp á hlunnindi svo sem samgöngustyrk vegna vistvænna samgangna

  • Gott og metnaðarfullt teymi þar sem samvinna og frumkvæði eru í hávegum höfð

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn

  • Ferilskrá ásamt umsagnaraðilum og ítarlegt kynningarbréf

Þjóðleikhúsið áskilur sér rétt til að ráða engan umsækjanda í starfið ef hópur umsækjenda uppfyllir ekki ofangreind hæfnisviðmið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Við hvetjum öll áhugasöm, óháð kyni og uppruna, til að sækja um.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 05.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Þóra Gréta Þórisdóttir

Framkvæmdastjóri fjármála og rekstrar

Tölvupóstur: thora.thorisdottir@leikhusid.is

Eyjólfur Gíslason

Mannauðsstjóri

Tölvupóstur: eyjolfur.gislason@leikhusid.is

Þjónustuaðili

Þjóðleik­húsið

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í bókhaldi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

19.02.2026

Umsóknarfrestur

05.03.2026