Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn á höfuð­borg­ar­svæðinu

Upplýsingar um starf

Starf

Yfirlögregluþjónn á Farsældarsviði LRH

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

19.02.2026

Umsóknarfrestur

06.03.2026

Yfirlögregluþjónn á Farsældarsviði LRH

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu leitar eftir drífandi og framsýnum einstaklingi í stöðu yfirlögregluþjóns á Farsældarsvið embættisins. Um spennandi, krefjandi og fjölbreytt starf er að ræða sem heyrir undir lögreglustjóra.

Farsældarsvið er þverfaglegt svið innan lögreglu sem hefur það hlutverk að efla farsæld og öryggi barna og ungmenna, tryggja barnvæna nálgun við meðferð og rannsókn mála og stuðla að snemmtækri íhlutun, forvörnum og eflingu samfélagslöggæslu. Sviðinu er ætlað að bæta skilvirkni og árangur í meðferð heimilisofbeldismála og stuðla að upplýsingamiðlun og forvörnum í samfélaginu. Sviðið vinnur í nánu samráði við sveitarfélög og aðra samstarfsaðila að þessum markmiðum. Yfirlögregluþjónn á Farsældarsviði ber ábyrgð á eftirfarandi málaflokkum: Farsæld barna, heimilisofbeldi, samfélagslöggæsla og samráð og samstarf við sveitarfélög og aðra þjónustuaðila.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem er til staðar fyrir alla alltaf. Megin áhersla er lögð á jafnrétti, starfsánægju, heilbrigðan starfsanda, traust og gagnsæi í samskiptum og að starfsfólk búi yfir þekkingu og hæfni til að takast á við fjölbreytileg verkefni. Starfsfólk embættisins er um 480 á fjórum megin starfsstöðvum.

Gildi embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu eru TRAUST, FAGMENNSKA og ÖRYGGI.

Helstu verkefni og ábyrgð

Í samræmi við 5. gr. reglugerðar um starfsstig innan lögreglu, þ.á.m. þátttaka í áætlanagerð, skipulagningu og markmiðssetningu embættisins, eftirlit með því að reglum og fyrirmælum sé framfylgt, stjórn og ábyrgð á tilteknum verkefnum sem honum eru falin og krefjast sérstakrar þekkingar, þjálfunar og menntunar. Í starfinu felst meðal annars:

  • Stýrir farsældarsviði LRH og ber ábyrgð á daglegum rekstri og fjárhagsáætlunum sviðsins.

  • Ákveður framkvæmd og önnur verkefni á sviðinu í samráði við lögreglustjóra með hliðsjón af stefnu og markmiðum LRH.

  • Ber ábyrgð á að starfsemi sviðsins sé í samræmi við lög og reglur er um starfsemina gilda og verklag, verkferla, fyrirmæli og ákvarðanir sem kynntar hafa verið stjórnendum.

  • Kemur á og viðheldur virkri eftirfylgni með vinnslu heimilisofbeldismála, m.a. með mælaborðum og reglulegri greiningu gagna.

  • Leiðir og samræmir nálgun lögreglu í málefnum barna þvert á deildir embættisins, með hagsmuni barnsins ávallt í forgrunni og tryggir að rannsóknir mála sem varða börn og bið eftir þjónustu lögreglu taki sem stystan tíma.

  • Leiðir uppbyggingu og eflingu samfélagslöggæslu með skýrri verkaskiptingu og ábyrgð og stuðlar að auknum sýnileika lögreglu og bættu aðgengi almennings að þjónustu lögreglu.

  • Mótar stefnu, markmið og verkferla sviðsins í samræmi við lög, reglugerðir og stefnu stjórnvalda um farsæld, forvarnir og samfélagsöryggi.

  • Leiðir þverfaglegt samstarf við innri og ytri samstarfsaðila, m.a. sveitarfélög, barnavernd, heilbrigðisþjónustu, skóla og frjáls félagasamtök.

  • Tryggir faglega framkvæmd verkefna sem snúa að snemmtækri íhlutun, ofbeldisforvörnum, málefnum barna og ungmenna, jaðarhópum og samfélagslöggæslu.

  • Stuðlar að gæðum, samræmi og stöðugum umbótum í starfsemi sviðsins.

  • Situr í framkvæmdarstjórn embættisins og tekur þátt í stefnumótun embættisins

  • Kynnir starfsemi sviðsins fyrir stjórnendum, samstarfsaðilum og almenningi eftir þörfum.

Hæfniskröfur

Umsækjandi skal hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í lögreglufræðum frá Háskólanum á Akureyri sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar og hafa starfað sem lögreglumaður í að minnsta kosti 5 ár að prófi loknu, sbr. 3. mgr, 14. gr. reglugerðar nr. 1051/2006 um starfsstig innan lögreglu.

  • Yfirgripsmikil þekking og reynsla af starfsemi lögreglu.

  • Farsæl reynsla af stjórnun innan lögreglu.

  • Reynsla og þekking af snemmtækri íhlutun, ofbeldisforvörnum, málefnum barna, ungmenna og jaðarhópa.

  • Reynsla og þekking af samfélagslöggæslu.

  • Reynsla og þekking af meðferð og rannsóknum heimilisofbeldismála.

  • Góð reynsla af samstarfi við sveitarfélög og aðra hagaðila lögreglu.

  • Brennandi áhugi á umbótastarfi og á að efla starfsfólk í störfum sínum.

  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.

  • Mjög góð þjónustulund, jákvætt og sveigjanlegt viðhorf.

  • Leiðtogahæfni, frumkvæði, sjálfstæði í starfi og gott álagsþol.

  • Árangurs- og lausnamiðuð hugsun.

  • Þekking og reynsla af því að leiða breytingar.

  • Skipulagshæfni, nákvæmni og öguð vinnubrögð.

  • Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.

Þess er vænst að umsækjandi hafi reynslu af störfum þar sem reynt hefur á þessa eiginleika.

Umsókn skal fylgja ferilskrá, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið, auk afrita af prófskírteinum.

Við ráðningar hjá LRH er tekið mið af jafnréttisáætlun embættisins.

Vakin er athygli á því að engan má ráða til starfa hjá lögreglu sem hlotið hefur fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn varð eftir að hann varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu, sbr. 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 06.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Halla Bergþóra Björnsdóttir

Lögreglustjóri

Tölvupóstur: HallaBB@lrh.is

Sími: 444-1000

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn á höfuð­borg­ar­svæðinu

Upplýsingar um starf

Starf

Yfirlögregluþjónn á Farsældarsviði LRH

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

19.02.2026

Umsóknarfrestur

06.03.2026