
Þjónustuaðili
Þjóðleikhúsið
Upplýsingar um starf
Starf
Tónlistarstjóri Óperunnar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.02.2026
Umsóknarfrestur
05.03.2026
Tónlistarstjóri Óperunnar
Óperan auglýsir lausa til umsóknar stöðu tónlistarstjóra. Um er að ræða fullt starf sem felur í sér þátttöku í uppbyggingu nýrrar óperustofnunar og þróun öflugs, faglegs óperustarfs á Íslandi. Tónlistarstjóri ber ábyrgð á helstu tónlistarþáttum starfseminnar í nánu samstarfi við óperustjóra og aðra lykilstarfsmenn og tekur þátt í mótun dagskrár. Starfið er bæði fjölbreytt og krefjandi og kallar á víðtæka tónlistarlega kunnáttu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón með tónlistarþætti óperuverkefna og söngþjálfun einsöngvara
Stjórnun kórs/hljómsveitar á æfingum/sýningum
Þátttaka í áheyrnarprufum og skipulagningu þeirra
Skipulagning og samhæfing tónlistaræfinga
Vinna með gestastjórnendum, aðstoða þá eftir þörfum og geta leyst af ef aðstæður krefja
Tækifæri til að stjórna ýmsum uppfærslum og verkefnum
Getur leyst repetitör af eftir þörfum
Hæfniskröfur
Háskólamenntun í tónlist
Reynsla af starfi í óperuhúsi sem repetitör, aðstoðarhljómsveitarstjóri eða annað sambærilegt
Góð þekking á söngröddinni og óperubókmenntum, reynsla af samstarfi við söngvara og hæfni til að leiða tónlistarstarf
Góð hæfni í skipulags- og áætlanagerð
Góð íslensku- og enskukunnátta er æskileg
Framúrskarandi samskipta- og samstarfsfærni
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hljómlistarmanna hafa gert.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn
Ferilskrá ásamt umsagnaraðilum og ítarlegt kynningarbréf
Afrit af prófskírteinum
Tenglar á upptökur/myndbönd ef til eru
Óperan áskilur sér rétt til að ráða ekki í starfið ef enginn umsækjandi uppfyllir settar kröfur. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Við hvetjum öll áhugasöm, óháð kyni og uppruna, til að sækja um.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 05.03.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Þjóðleikhúsið
Upplýsingar um starf
Starf
Tónlistarstjóri Óperunnar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.02.2026
Umsóknarfrestur
05.03.2026