Þjónustuaðili
Fangelsismálastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Matráður í mötuneytið á Litla Hrauni
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
80%
Starf skráð
17.02.2026
Umsóknarfrestur
02.03.2026
Matráður í mötuneytið á Litla Hrauni
Fangelsismálastofnun óskar eftir að ráða í eina stöðu matráðs í mötuneyti fangelsisins Litla-Hraun.
Leitað er að einstaklingi með ástríðu fyrir góðum mat og þjónustulund.
Mötuneytið er bæði fyrir starfsfólk og skjólstæðinga á Litla-Hrauni og á Hólmsheiði.
Um er að ræða 80% starf sem unnið er í vaktavinnu.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sér um matseld og fylgir áherslum um hollustu, næringargildi og eldamennsku frá grunni.
Innkaup eftir þörfum í samráði við yfirmann mötuneytis.
Vinnur að umbótum í matseld og gæðum máltíða í samræmi við stefnu yfirmanns mötuneytis.
Aðstoð við gerð matseðla.
Eftirlit með að reglum um hollustuhætti sé fylgt.
Eftirlit með nýtingu matvæla og að koma í veg fyrir sóun.
Leysir af yfirmann mötuneytis í fjarveru hans.
Þátttaka í pökkun, afhendingu máltíða og sendingum til Hólmsheiðar.
Tekur þátt í eftirliti með skjólstæðingum í samráði við yfirmann mötuneytis og matráð.
Sinnir öðrum verkefnum mötuneytis samkvæmt fyrirmælum yfirmanns mötuneytis.
Akstur með máltíðir til Hólmsheiðar um helgar.
Hæfniskröfur
Menntunar- og hæfniskröfur
Hafa lokið matartækninámi eða sambærilegu námi.
Hafa 1-3 ára reynsla af störfum í mötuneyti eða eldhúsi.
Ökuréttindi.
Persónulegir eiginleikar:
Góð hæfni í mannlegum samskiptum og samstarfi.
Geta unnið sjálfstætt og eftir ákveðnum verklagsreglum og gæðakröfum.
Nákvæmni, hreinlæti og ábyrgð í störfum.
Frumkvæði og skipulagshæfni.
Vilji til að tileinka sér ný vinnubrögð og taka þátt í umbótum í þjónustu og gæðum.
Góð íslenskukunnátta.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Vinnutími er frá 07:00 -14:30 og um er að ræða vaktavinnu. Unnið er eftir 2-2-3 vaktafyrirkomulagi.
Athygli er vakin á því að áður en til ráðningar kemur skal umsækjandi, að fengnu samþykki hans, undirgangast bakgrunnsskoðun skv. 10. gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga.
Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfshlutfall er 80%
Umsóknarfrestur er til og með 02.03.2026
Nánari upplýsingar veitir
Sævar Birnir Steinarsson
Sími: 520-5900
Þjónustuaðili
Fangelsismálastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Matráður í mötuneytið á Litla Hrauni
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
80%
Starf skráð
17.02.2026
Umsóknarfrestur
02.03.2026