Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnisstjóri hjá Alþjóðamálastofnun

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

18.02.2026

Umsóknarfrestur

02.03.2026

Verkefnisstjóri hjá Alþjóðamálastofnun

Laust er til umsóknar fullt starf verkefnisstjóra við Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands. Verkefnisstjórinn mun starfa í teymi starfsfólks Alþjóðamálastofnunar sem sinnir daglegum verkefnum í samvinnu við samstarfsstofnanir, atvinnulíf og aðra hagaðila. Lögð er áhersla á hvetjandi starfsumhverfi sem laðar til sín metnaðarfullt fólk með fjölbreyttan bakgrunn.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þátttaka í skipulagi rannsóknaverkefna og skrifum styrkumsókna

  • Þátttaka í skipulagningu á ráðstefnum sem stofnunin stendur fyrir

  • Skipulagning funda, fyrirlestra og viðburða í samstarfi við starfsfólk stofnunarinnar

  • Kynningarmál stofnunarinnar í samstarfi við starfsfólk stofnunarinnar

Hæfniskröfur

  • Meistarapróf sem nýtist í starfi t.d. í alþjóðasamskiptum, alþjóðastjórnmálum eða stjórnmálafræði

  • Reynsla af verkefnisstjórnun í alþjóðlegum verkefnum er æskileg

  • Reynsla af gerð styrkumsókna er kostur

  • Reynsla af kynningarmálum og skipulagningu viðburða er kostur

  • Frumkvæði og sjálfstæði í störfum

  • Þjónustulund, sveigjanleiki og lipurð í mannlegum samskiptum

  • Góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Ferilskrá

  • Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins

  • Afrit af prófskírteinum

  • Upplýsingar um umsagnaraðila

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 02.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Pia Elísabeth Hansson

forstöðumaður

Tölvupóstur: pia@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnisstjóri hjá Alþjóðamálastofnun

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

18.02.2026

Umsóknarfrestur

02.03.2026