Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnisstjóri innviðaeftirlits

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

18.02.2026

Umsóknarfrestur

02.03.2026

Verkefnisstjóri innviðaeftirlits

Laust er til umsóknar fullt starf verkefnisstjóra innviðaeftirlits við framkvæmda- og tæknisvið Háskóla Íslands.

Á skrifstofu sviðsins starfa auk sviðsstjóra verkefnisstjórar ýmissa verkefna sem viðkoma rekstri og viðhaldi fasteigna. Sviðið skiptist í þrjár deildir þ.e., viðhaldsdeild, rekstur fasteigna og umsjón fasteigna.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Uppbygging og rekstur LoRaWAN tækjanets fyrir byggingar Háskóla Íslands

  • Uppsetning kerfa til skráningar upplýsinga frá húskerfum bygginga

  • Rafrænn aflestur veitukerfa og vistun og framsetning gagna

  • Mat á rýmisnýtingu og eftirlit með mikilvægum innviðum Háskóla Íslands

  • Rekstur og eftirlit með húskerfum

  • Vöktun á búnaði í rannsóknaumhverfi fræðasviða

  • Stuðla að bættri nýtingu innviða háskólans, bæði fjárhagslega og umhverfislega

Hæfniskröfur

  • Meistarapróf sem nýtist í starfi

  • Reynsla af sambærilegum verkefnum er kostur

  • Reynsla af uppbyggingu og reksturs á LoRaWAN tækjanetskerfi er æskileg

  • Reynsla af örtölvuforritun og smíði rafrása er æskileg

  • Reynsla úr rannsóknaumhverfi og af tækjabúnaði tengdum grunnrannsóknum er kostur

  • Samskiptahæfni, þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum

  • Íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Ferilskrá

  • Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins

  • Afrit af prófskírteinum

  • Upplýsingar um umsagnaraðila

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 02.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Kristinn Jóhannesson

Sviðsstjóri framkvæmda- og tæknisviðs

Tölvupóstur: kjohannesson@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnisstjóri innviðaeftirlits

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

18.02.2026

Umsóknarfrestur

02.03.2026