Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Umhverfis- og orkustofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur á sviði fjármála

Staðsetning

Óstaðbundið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

19.02.2026

Umsóknarfrestur

09.03.2026

Sérfræðingur á sviði fjármála

Laust er til umsóknar fjölbreytt og spennandi starf sérfræðings á sviði fjármála- og framtíðarsýnar í teymi fjármála hjá Umhverfis- og orkustofnun. Helstu verkefni sérfræðingsins felast í fjárhagsbókhaldi og uppgjöri stofnunarinnar, þar á meðal afstemmingum, uppgjöri alþjóðlegra styrkverkefna og samskiptum við evrópskar og alþjóðlegar stofnanir. Við leitum að kraftmiklum og áhugasömum einstaklingi sem er tilbúinn að taka þátt í umbótum á fjárhagsbókhaldi í ríkisrekstri og stafrænum verkefnum sem tengjast fjármálum stofnunarinnar. Um er að ræða fullt starf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Bókhald og reikningsskil stofnunarinnar, þ.m.t. daglegar bókhaldsfærslur og afstemming fjárhagslykla

  • Uppgjör og reikningsskil alþjóðlegra styrkverkefna í samstarfi við evrópskar og alþjóðlegar stofnanir

  • Afstemming bókhalds og eftirfylgni við áætlanir og fjárheimildir

  • Þátttaka í gerð ársreikninga og fjárhagsáætlana

  • Samskipti við Fjársýslu ríkisins, ráðuneyti og aðrar opinberar stofnanir vegna fjárhagsmála

  • Stafræn þróun í fjármálaferlum og þátttaka í innleiðingu nýrra kerfa og verkfæra

  • Ýmis önnur verkefni á sviði fjármála eftir nánara samkomulagi

Hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi, t.a.m. viðskiptafræði, verkfræði eða sambærilegt nám er kostur

  • Þekking og/eða reynsla á sviði fjárhagsbókhalds

  • Reynsla af Excel er skilyrði; önnur stafræn verkfæri eru kostur

  • Góð samstarfshæfni og sveigjanleiki í samskiptum

  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð

  • Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti

Eftirfarandi er verulegur kostur

  • Reynsla af bókhaldi, sérstaklega í ríkisrekstri

  • Reynsla af uppgjöri alþjóðlegra styrkverkefna

  • Reynsla af afstemmingum

  • Þekking á opinberri stjórnsýslu og starfsumhverfi ríkisstofnana

  • Stafræn verkefni - þekking og geta til að sýna frumkvæði

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Spennandi verkefni og gott vinnuumhverfi

Umhverfis- og orkustofnun fer með stjórnsýslu og eftirlit á sviði loftslags-, umhverfis- og orkumála og málefni auðlindanýtingar. Verkefni stofnunarinnar eru fjölbreytt og starfsumhverfið er metnaðarfullt. Við viljum laða að öflugt fagfólk sem leggur áherslu á stöðugar umbætur, stafræna þróun og miðlun. Umhverfis- og orkustofnun leggur áherslu á heilsu, öryggi og vellíðan og góð skilyrði fyrir starfsfólk til að þróast og eflast í starfi. Starfsaðstaða er víða í verkefnamiðuðu vinnuumhverfi og við viljum hlýlegt andrúmsloft fyrir allt starfsfólk. Við erum með 36 stunda vinnuviku og sveigjanlegan vinnutíma. Sjá nánari upplýsingar um Umhverfis- og orkustofnun á uos.is.

Starfsstöðvar kringum landiðStarfsstöðvar Umhverfis- og orkustofnunar eru á Akureyri, Egilsstöðum, Selfossi og í Reykjavík. Unnið er að því að opna starfsstöð í Borgarnesi. Starfsfólk okkar getur valið starfsstöð. Gott vinnuumhverfi er okkar markmið, á öllum starfsstöðvum.

Næsti yfirmaður sérfræðingsins er Hjörvar Steinn Grétarsson, sviðsstjóri fjármála- og framtíðarsýnar, en Þórdís Helgadóttir mannauðssérfræðingur veitir einnig nánari upplýsingar um starfið í síma 569 6000.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags.

Umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf á íslensku, þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda í starfið.

TIL AÐ SÆKJA UM SMELLIÐ HÉR

ATH!! Einungis er tekið við umsóknum á 50skills en ekki í gegnum Starfatorg.

Gagnkvæmur reynslutími eru sex mánuðir við ráðningu. Æskilegt er að sérfræðingurinn geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Við hvetjum áhugasöm til að sækja um, óháð kyni og uppruna.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 09.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hjörvar Steinn Grétarsson

Sviðsstjóri

Tölvupóstur: hjorvar.gretarsson@uos.is

Sími: 5696000

Þórdís Helgadóttir

Mannauðssérfræðingur

Tölvupóstur: thordis.helgadottir@uos.is

Sími: 5696000

Þjónustuaðili

Umhverfis- og orkustofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur á sviði fjármála

Staðsetning

Óstaðbundið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

19.02.2026

Umsóknarfrestur

09.03.2026