Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn í Vestmanna­eyjum

Upplýsingar um starf

Starf

Lögreglumenn-sumarafleysingar-Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum 2026

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

24.02.2026

Umsóknarfrestur

06.03.2026

Lögreglumenn-sumarafleysingar-Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum 2026

Hjá lögreglustjóranum í Vestmannaeyjum eru lausar til umsóknar tímabundnar stöður lögreglumanna til sumarafleysinga . Ráðningartímabil er frá 1. júní til 31. ágúst 2026.

Helstu verkefni og ábyrgð

Hlutverk lögreglu er m.a. að gæta almannaöryggis og halda uppi lögum og reglu, leitast við að tryggja réttaröryggi borgaranna og vernda eignarrétt, opinbera hagsmuni og hvers konar lögmæta starfsemi, stemma stigu við afbrotum, koma í veg fyrir athafnir sem raska öryggi borgaranna og ríkisins, vinna að uppljóstran brota, stöðva ólögmæta háttsemi og greiða götu borgaranna eftir því sem við á og aðstoða þá þegar hætta steðjar að. Um v erksvið og ábyrgð lögreglumanna vísast nánar til 11. gr. reglugerðar nr. 1051/2006 um starfsstig innan lögreglunnar.

Hæfniskröfur

Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar. Vakin er athygli á að lögreglustjóra er heimilt að ráða starfsmenn sem ekki hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í lögreglufræðum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar að því gefnu að ekki fáist faglærðir lögreglumenn í stöðurnar. Þeir sem ekki hafa áður starfað í lögreglu verða að vera reiðubúnir að sitja nýliðanámskeið og standast þrekpróf og læknisskoðun.

Gerð er krafa um góða samskipta- og samvinnuhæfni, lausnamiðað og jákvætt viðhorf, sveigjanleika og drifkraft auk skipulagshæfni og vandvirkni í vinnubrögðum.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.

Um vaktavinnu er að ræða auk bakvaktaskyldu að hluta.

Vakin er athygli á að engan má skipa, setja eða ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur hlotið fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að hann varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem rýrt getur það traust sem starfsmenn lögreglu verða að njóta, sbr. 28. gr. a lögreglulaga nr. 90/1996. Með umsókn sinni heimilar umsækjandi lögreglustjóra að staðreyna með öflun upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu hvort umsækjandi uppfylli þessi skilyrði.

Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Sótt er um starfið rafrænt á hlekknum hér að neðan. Umsókn skulu fylgja afrit prófskírteina/námskeiða, ferilskrá og kynningarbréf að hámarki ein blaðsíða.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 06.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Stefán Jónsson

yfirlögregluþjónn

Tölvupóstur: stefanj@logreglan.is

Sími: 4442093

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn í Vestmanna­eyjum

Upplýsingar um starf

Starf

Lögreglumenn-sumarafleysingar-Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum 2026

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

24.02.2026

Umsóknarfrestur

06.03.2026