Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Umhverfis- og orkustofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í vatnamálum og samskiptastjóri LIFE Icewater

Staðsetning

Óstaðbundið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

13.02.2026

Umsóknarfrestur

23.02.2026

Sérfræðingur í vatnamálum og samskiptastjóri LIFE Icewater

Hjá Umhverfis- og orkustofnun er laust til umsóknar starf sérfræðings í teymi hafs og vatns. Stofnunin annast stjórnsýslu á sviði vatnsverndar í samræmi við lög um stjórn vatnamála og stýrir vinnu við gerð vatnaáætlunar Íslands. Um er að ræða fullt starf.

Stofnunin hlaut nýverið styrk frá LIFE áætlun Evrópusambandsins til verkefnisins LIFE Icewater, sem snýr að verndun vatns og innleiðingu vatnaáætlunar hér á landi.

Starfið er tvíþætt. Í fyrsta lagi felur starfið í sér þátttöku í faglegri vinnu á sviði vatnamála innan teymis hafs og vatns, t.d. framfylgd aðgerða í aðgerðaáætlun vatnaáætlunar, undirbúning við gerð endurskoðaðrar vatnaáætlunar og samskipti við hagaðila, samstarfsaðila og almenning. Í öðru lagi verkefnastjórn á einum af vinnupökkum LIFE Icewater verkefnisins sem fjallar um uppbyggingu á þekkingu, getu og miðlun, meðal annars með því að styðja við samskipti og fræðslu um LIFE Icewater verkefnið. Starfið felur jafnframt í sér miðlun á framvindu og afrakstri verkefnisins til almennings auk samskipta við þátttakendur og hagaliða verkefnisins.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Stýra vinnupakka um samskipti, fræðslu og uppbyggingu þekkingar innan Icewater og tengdra verkefna.

  • Taka þátt í faglegu starfi sem sérfræðingur innan teymi hafs og vatns við framkvæmd vatnaáætlunar og stjórn vatnamála.

  • Hafa yfirsýn yfir samskipti og miðlun Icewater verkefnisins í heild sinni.

  • Leiða uppbyggingu þekkingar innan Icewater, m.a. með því að safna, vinna og miðla faglegum upplýsingum um vatn og vatnamál.

  • Stýra undirbúningi og framkvæmd vinnustofa og annarra fræðsluviðburða á sviði vatnamála.

  • Hafa umsjón með skýrslugerð til styrkveitanda Icewater sem varða miðlun, fræðslu og þekkingaruppbyggingu.

  • Veita ráðgjöf og aðstoð við samstarfsaðila Icewater vegna kynningar-, fræðslu- og útgáfumála sem tengjast vatnamálum.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun á sviði raunvísinda sem nýtist í starfi s.s. líffræði eða umhverfis- og auðlindafræði.

  • Framúrskarandi samskiptahæfni, frumkvæði og reynsla af verkefnastjórnun er æskileg.

  • Áhugi á verndun vatns og hafs.

  • Reynsla og hæfni á sviði fræðslu og miðlunar.

  • Starfsreynsla þar sem reynt hefur á textaskrif, ritstjórn, vefumsjón og miðlun efnis er æskileg.

  • Gott vald á íslensku og ensku bæði í ræðu og riti er nauðsynleg.

  • Reynsla og/eða menntun á sviði vísindamiðlunar er kostur.

  • Reynsla af viðburðastjórnun er kostur.

  • Reynsla af evrópskum rannsóknaverkefnum er kostur.

  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Spennandi verkefni og gott vinnuumhverfi

Umhverfis- og orkustofnun fer með stjórnsýslu og eftirlit á sviði loftslags-, umhverfis- og orkumála og málefni auðlindanýtingar. Verkefni stofnunarinnar eru fjölbreytt og starfsumhverfið er metnaðarfullt. Við viljum laða að öflugt fagfólk sem leggur áherslu á stöðugar umbætur, stafræna þróun og miðlun. Umhverfis- og orkustofnun leggur áherslu á heilsu, öryggi og vellíðan og góð skilyrði fyrir starfsfólk til að þróast og eflast í starfi. Starfsaðstaða er víða í verkefnamiðuðu vinnuumhverfi og við viljum hlýlegt andrúmsloft fyrir allt starfsfólk. Við erum með 36 stunda vinnuviku og sveigjanlegan vinnutíma. Sjá nánari upplýsingar um Umhverfis- og orkustofnun á uos.is.

Starfsstöðvar kringum landið

Starfsstöðvar Umhverfis- og orkustofnunar eru á Akureyri, Egilsstöðum, Selfossi og í Reykjavík. Unnið er að því að opna starfsstöð í Borgarnesi. Starfsfólk okkar getur valið starfsstöð. Gott vinnuumhverfi er okkar markmið, á öllum starfsstöðvum.

Næsti yfirmaður sérfræðingsins er Lilja Ólafsdóttir sviðsstjóri, en Hólmfríður Þorsteinsdóttir teymisstjóri veitir einnig nánari upplýsingar um starfið auk Þóru Margrétar Pálsdóttur Briem mannauðsstjóra í síma 569 6000.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags.

Umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf á íslensku, þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda í starfið.

TIL AÐ SÆKJA UM SMELLIÐ HÉR

ATH!! Einungis er tekið við umsóknum á 50skills en ekki í gegnum Starfatorg.

Gagnkvæmur reynslutími er sex mánuðir við ráðningu. Æskilegt er að sérfræðingurinn geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Við hvetjum áhugasöm til að sækja um, óháð kyni og uppruna.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 23.02.2026

Nánari upplýsingar veitir

Lilja Ólafsdóttir

sviðsstjóri

Tölvupóstur: lilja.olafsdottir@uos.is

Sími: 5696000

Hólmfríður Þorsteinsdóttir

teymisstjóri

Tölvupóstur: holmfridur.thorsteinsdottir@uos.is

Sími: 5696000

Þjónustuaðili

Umhverfis- og orkustofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í vatnamálum og samskiptastjóri LIFE Icewater

Staðsetning

Óstaðbundið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

13.02.2026

Umsóknarfrestur

23.02.2026