Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Fjölbrauta­skóli Suður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Kennari í vélvirkjun

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

13.02.2026

Umsóknarfrestur

23.02.2026

Kennari í vélvirkjun

Fjölbrautaskóli Suðurlands óskar eftir að ráða kennara í vélvirkjun frá 1. ágúst 2026. Um er að ræða 100% starf skólaárið 2025 - 2026.

FSu er líflegur og skapandi vinnustaður með metnaðarfullu starfsfólki og góðum starfsanda. Um 150 starfa við skólann og nemendur eru yfir 1000. Skólinn státar af fjölbreyttu námsframboði en yfir 20 námsbrautir eru í boði; bóknám, verknám, listnám auk öflugra íþróttaakademía, hestabrautar og garðyrkjunáms á Reykjum. Unnið er markvisst eftir gildum skólans sem eru fjölbreytni, sköpun, upplýsing.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Kennari ber ábyrgð á undirbúningi kennslu, kennslu og námsmati í kennslugreinum sínum samkvæmt markmiðum aðal- og skólanámskrár.

  • Tekur þátt í faglegu samstarfi.

  • Ber ábyrgð á almennri upplýsingagjöf til nemenda og aðstandenda.

  • Situr kennarafundi og vinnur önnur störf sem honum eru falin og samrýmast gildandi kjarasamningum, lögum og reglugerðum.

Hæfniskröfur

  • Menntun í vélvirkjun, bifvélavirkjun eða skyldum greinum.

  • Leyfisbréf sem kveður á um rétt til að nota starfsheitið kennari skv. lögum nr. 95/2019.

  • Kennslureynsla í nýlegri námskrá er skilyrði.

  • Grunnur í tölvuteikningu er skilyrði.

  • Reynsla af notkun vinnuvélaherma er kostur.

  • Góð tölvukunnátta og hæfni í notkun upplýsingatækni, m.a. Office365.

  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, teymisvinnu og ríkur samstarfsvilji.

  • Áhugi á skólastarfi og færni í að vinna með ungu fólki.

  • Faglegur metnaður, frumkvæði, öguð vinnubrögð og jákvætt hugarfar.

  • Við ráðningu verður miðað við að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum skólans.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.

Umsókn skal fylgja afrit af prófskírteini, ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir því hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur. Umsækjendur þurfa að skila inn hreinu sakavottorði skv. lögum nr. 92/2008. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út nema að umsækjandi ákveði annað.

Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er áhugasamt fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir.

Upplýsingar um skólann má finna á www.fsu.is.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 23.02.2026

Nánari upplýsingar veitir

Soffía Sveinsdóttir

skólameistari

Tölvupóstur: soffia@fsu.is

Sími: 480-8100

Gísli Viðar Oddsson

fagstjóri málmiðngreina

Tölvupóstur: gisli.oddsson@fsu.is

Sími: 480-8100

Þjónustuaðili

Fjölbrauta­skóli Suður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Kennari í vélvirkjun

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

13.02.2026

Umsóknarfrestur

23.02.2026