
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnisstjóri við Sjálfbærnistofnun
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
18.02.2026
Umsóknarfrestur
02.03.2026
Verkefnisstjóri við Sjálfbærnistofnun
Laust er til umsóknar fullt starf verkefnisstjóra hjá Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands. Meginhlutverk Sjálfbærnistofnunar er að vera vettvangur og stoð við þverfræðilegar rannsóknir háskólakennara, sérfræðinga og framhaldsnema á sviði sjálfbærrar þróunar, með víðtæka yfirsýn og tengsl innan og utan HÍ. Sjálfbærnistofnun er jafnframt samstarfsvettvangur við aðila utan háskólans, svo sem stjórnvöld, sveitarfélög, stofnanir, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga. Stofnunin stendur fyrir málþingum og fyrirlestrum, veitir sérfræðiaðstoð, ráðgjöf og annast fræðslustarf á sviði sjálfbærrar þróunar. Sjálfbærnistofnun heyrir undir öll fræðasvið Háskóla Íslands og er stjórn skipuð fulltrúum þeirra.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ritstjórn og gerð skýrslna og annars ritaðs efnis
Skipulag rannsóknaverkefna og vinna við gerð styrkumsókna
Vinna við eigindlegar rannsóknir og gagnagreiningu
Skipulagning og stýring vinnustofa og samráðsferla
Skipulagning funda, fyrirlestra og viðburða
Umsjón með kynningarmálum stofnunarinnar í samstarfi við annað starfsfólk stofnunarinnar
Hæfniskröfur
Meistarapróf sem nýtist í starfi
Reynsla af verkefnastjórnun
Reynsla á málefnum sjálfbærni, loftslagsbreytinga og skyldra sviða er æskileg
Reynsla af skipulagningu og stýringu vinnustofa, samráðsferla og hagsmunaaðilaþátttöku er æskileg
Reynsla af gerð styrkumsókna er kostur
Frumkvæði og sjálfstæði í störfum
Þjónustulund, sveigjanleiki og lipurð í mannlegum samskiptum
Góð kunnátta í íslensku og ensku, í ræðu sem og riti
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Ferilskrá
Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins
Afrit af prófskírteinum
Upplýsingar um umsagnaraðila
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.03.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnisstjóri við Sjálfbærnistofnun
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
18.02.2026
Umsóknarfrestur
02.03.2026