Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðarmaður - miðlæg aðstoð á deildum Sjúkrahússins á Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

90%

Starf skráð

11.02.2026

Umsóknarfrestur

23.02.2026

Aðstoðarmaður - miðlæg aðstoð á deildum Sjúkrahússins á Akureyri

Sjúkrahúsið á Akureyri óskar eftir að ráða aðstoðarmann í miðlæga aðstoð, um er að ræða 90 % stöðu í vaktavinnu. Staðan er laus nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Miðlæg aðstoð er spennandi og fjölbreytt starf í þróun sem vinnur þvert á deildir spítalans

Næsti yfirmaður er Erla Sigurgeirsdóttir, teymisstjóri miðlægrar aðstoðar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Flutningur sjúklinga

  • Almenn og sérhæfð þrif

  • Frágangur á vörum og áfyllingar

  • Sérhæfð verk á bráðamóttöku

  • Býtibúrsstörf

  • Önnur tilfallandi störf

Hæfniskröfur

  • Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar

  • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi

  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kjölur hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á . Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er 90%

Umsóknarfrestur er til og með 23.02.2026

Nánari upplýsingar veitir

Erla Sigurgeirsdóttir

deildarstjóri

Tölvupóstur: es1215@sak.is

Sími: 463-0100

Kristjana Kristjánsdóttir

deildarstjóri mannauðsdeildar

Tölvupóstur: kristjanak@sak.is

Sími: 463-0100

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðarmaður - miðlæg aðstoð á deildum Sjúkrahússins á Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

90%

Starf skráð

11.02.2026

Umsóknarfrestur

23.02.2026